Fyrr og nú - Kennsluleiðbeiningar fyrir yngsta stig
Fyrr og nú - Kennsluleiðbeiningar fyrir yngsta stig
Áætluð lengd: 20-30 kennslustundir.
Grunnþættir: Læsi og sköpun.
Námsgreinar: Íslenska, lykilhæfni, samfélagsfræði, upplýsinga- og tæknimennt og list- og verkgreinar.
Miðstig: Þetta verkefni er skrifað fyrir yngsta stig. Einnig eru til skyld þemaverkefni fyrir mið- og unglingastig. Þetta skjal er breytanlegt og kennarar eru hvattir til að aðlaga framsetningu eftir því sem við á.
Námsmarkmið: Meginmarkmið þessa þema eru að nemendur kynnist sögu landsins og átti sig á breytingum á íslensku samfélagi, að efla hæfni þeirra í ritun og heimildaöflun, og að þjálfa nemendur í sjálfstæðum og skapandi vinnubrögðum.
Fyrr og nú
Fyrr og nú er samþætt þemaverkefni þar sem nemendur vinna í hópum eftir áhugasviði, afla heimilda, velta fyrir sér þróun íslensks samfélags, skrifa saman bók um sögu lands og þjóðar fyrr og nú og semja leikrit.
Nemendur vinna í hópum. Hver hópur heldur utan um vinnu sína í sameiginlegri verkdagbók. Námsefnið er sett fram sem efni eða amboð. Nemendur geta líka valið sér sitt eigið efni eða ítarefni. Allt þemað er óháð ákveðnu námsefni. Gott er að kennarar taki til það námsefni sem til er í skólanum og leggi fram, svo það sé aðgengilegt nemendum í kennslustofunni.