Sleppa vöruupplýsingum
1 af 1

Dæmi um 31 námsveggir - Hagnýtt námskeið eða starfsdagur fyrir kennara

Dæmi um 31 námsveggir - Hagnýtt námskeið eða starfsdagur fyrir kennara

Verð 175.300 kr.
Verð Útsöluverð 175.300 kr.
Útsala Uppselt
Virðisaukaskattur innifalinn ef við á Sendingarkostnaður reiknast út frá magni ef við á

Á námskeiðinu eru gefin dæmi um 30 tegundir námsveggja sem kennarar geta nýtt í starfi sínu, hvort sem um er að ræða samþættar námsgreinar, list- og verkgreinar, íþróttir eða hvaða nám sem er á öllum skólastigum. 

Námsveggir eru mikilvægar námsstoðir. Tilgangur þeirra er að auka nemendasjálfstæði í námi og ramma inn nám sem fyrirhugað er að eigi sér stað. Á námskeiðinu er sérstaklega farið yfir hvernig nemendur geta tekið þátt í að stýra námi og byggja upp námsveggi, því með tímanum eflast nemendur sem námsmenn með tilkomu leiðsagnarnáms og námsveggja. 

Dæmin sem fjallað er um á námskeiðinu miðast aðallega við leiðsagnarnám. Engu að síður er fjallað um sex tegundir námsveggja sem skiptast í tvö meginþemu, þ.e. námsveggi sem vaxa með nemendum og námsveggi sem stýra námi. Einnig er farið yfir algeng mistök við notkun námsveggja og hvernig bæta má námsveggi sem hafa staðnað. 

Námsveggir varða leiðina að skýrum námsmarkmiðum og hjálpa bæði kennurum og nemendum að efla leiðsagnarnám í kennslustofunni á skemmtilegan og sjónrænan hátt. Á námskeiðinu er sérstaklega farið yfir mjög einfalda námsveggi sem gott er að byrja á, út frá viðfangsefnum sem kennarar þekkja og eiga auðvelt með að byggja ofan á.

Á netnámskeiðinu útbúa kennarar sína eigin námsveggi og deila þeim með öðrum kennurum á námskeiðinu. Þátttakendur rýna í og bæta námsveggina sína saman. Á seinni hluta námskeiðsins segja kennarar frá því hvernig gekk að nýta námsveggina í kennslu og deila reynslu sinni með öðrum. 


Ef námskeiðið er kennt á starfsdegi kafa kennarar dýpra í sköpun raunverulegra námsveggja og nýta þá í sýnikennslu. Afraksturinn verður nothæfir námsveggir sem kennarar skólans geta nýtt sér. 

Á námskeiðinu er stuðlað að því að efla gæði skólastarfsins. Helstu gæðaviðmið MMS um gæðastarf í grunnskólum sem tengjast viðfangsefninu eru: 

  • Viðmið um árangur sem tengjast námsgreinum og lykilhæfni eru skráð og öllum aðgengileg.
  • Nemendur gera sér grein fyrir þeim hæfniviðmiðum og leiðum sem þeir þurfa að vinna að til að ná markmiðum sínum og árangri í námsverkefnum. 
  • Nemendum er gerð grein fyrir markmiðum kennslustunda og verkefna. 
  • Í námsumhverfi nemenda eru sjónrænar stoðir nýttar til stuðnings við nám, t.d. námsveggir, myndrænt dagskipulag, tölur, stafir, leiðbeiningar.
  • Verk nemenda eru sýnileg og eru hluti af menningu grunnskólans.
  • Nemendur gera sér grein fyrir þeim hæfniviðmiðum og leiðum sem þeir þurfa að vinna að til að ná markmiðum sínum og árangri í námsverkefnum. 
  • Nemendur þjálfast í að meta eigið nám, vinnu og námsframvindu. 

Styrkur

  • Kennarar geta sótt um styrk til Kí 
  • Kennarar geta skráð námskeiðið sem persónulega endurmenntun og fengið sérstakt viðurkenningarskjal með staðfestingu á hæfni 

Kennarar á námskeiðum Ásgarðs   

Anna María Þorkelsdóttir - Kennsluráðgjafi, námsgagnahöfnundur og sérfræðingur í leiðsagnarnámi og upplýsingatækni 

Kristrún Lind Birgisdóttir - Kennsluráðgjafi, námsgagnahöfundur og framkvæmdastjóri

Tinna Björk Pálsdóttir - Kennsluráðgjafi, námsgagnahöfnundur og sérfræðingur í leiðsagnarnámi og upplýsingatækni

--------------

**Þetta námskeið er einnig fáanlegt sem námskeið fyrir starfsdaga. Hentar vel sem hálfur eða heill dagur fer eftir stærð skóla. Vinsamlegast hafið samband við Önnu Maríu annamaria@ais.is eða Kristrúnu kristrun@ais.is

Skoða allar upplýsingar