Hrekkjavaka. Fáanlegt sem starfsdagur.
Hrekkjavaka. Fáanlegt sem starfsdagur.
Viltu efla þig í starfi, fá innblástur og hagnýtar hugmyndir sem hægt er að nota strax í kennslu? Viltu styrkja þekkingu þína á leiðsagnarnámi og samþættingu verkefna? Viltu slá tvær flugur í einu höggi með því að koma á námskeið þar sem þú undirbýrð kennsluna í leiðinni? Þá eru námskeiðin okkar fyrir þig.
Á námskeiðum Ásgarðs fá kennarar tækifæri til að kynna sér gæðarýnd þemaverkefni og verkefnapakka sem hafa lykilhæfni að leiðarljósi. Hvert skref er vandlega skipulagt og hvert viðfangsefni útskýrt ítarlega með skýrum námsmarkmiðum, viðmiðum um árangur og hugmyndum að bókum og kennslutækjum. Með námskeiðunum spara kennarar sér gríðarlega mikinn undirbúningstíma og samþætta starfsþróun og undirbúning kennslu. Kennarar læra jafnframt að gæðarýna eigin verkefni og aðlaga samþættingarverkefni að aldri nemenda og aðstæðum í hverjum skóla.
Fyrirkomulag
-
Námskeiðin fara fram á netinu og standa í tvo klukkutíma í senn - eða fara fram á einum heilum eða tveimur hálfum starfsdögum
- Í fyrri hlutanum er eðli og innihald þemapakkanna kynnt, ásamt leiðum til að laga þá að hverjum skóla eða nemendahópi fyrir sig.
- Í seinni hlutanum er fyrirlestur um gæðarýni og leitast við að leysa vandamál sem upp hafa komið í kennslunni og miðla góðum hugmyndum áfram.
- Ítarlegur þemaverkefnipakki fyrir yngsta, mið og unglingastig fylgja með. Breytanleg skjöl með ítarlegum kennsluáætlunum sem auðvelda kennurum að laga kennsluna að þörfum og aðstæðum hverju sinni.
Dagsetningar
28. ágúst. Kl. 14.00 til 16.00
25. september. Kl. 14.00 til 16.00
Á þessu hagnýta námskeiði læra kennarar að nota þemaverkefnið Hrekkjavöku þar sem áhersla er lögð á fjölþætta samþættingu með list- og verkgreinar í forgrunni. Nemendur læra um sögu hrekkjavökunnar með því að nýta sér heimildir á ensku og íslensku. Það er auðvelt að laga verkefni þemans að þörfum nemenda, til dæmis með því að nota bara íslensku eða önnur tungumál. Verkefninu lýkur með hrekkjavökuhátíð þar sem sýndar eru hrollvekjur og boðið upp á veitingar.
Nemendur skrifa handrit sem byggir á hrekkjavökunni, útbúa leikmynd, búninga og allt sem til þarf. Á námskeiðinu fá kennarar tækifæri til að útfæra samþættingarverkefnin í samræmi við aldur nemenda og aðstæður í hverjum skóla. Í verkefninu er gert ráð fyrir að nemendur búi til hryllingsmynd, en hér getur líka hentað að setja upp leiksýningu. Hrekkjavaka er einstaklega skemmtilegt verkefni sem lífgar upp á vikurnar í aðdraganda hátíðarinnar. Í verkefnapakkanum eru tiltölulega fá hæfniviðmið, en þeim mun meiri áhersla er lögð á að virkja sköpunarkraft nemenda. Hrekkjavaka er tilvalin leið til að tengja saman list- og verkgreinakennara og umsjónarkennara eða aðra faggreinakennara. Það er til dæmis ekkert því til fyrirstöðu að kenna allt verkefnið á ensku eða gefa nemendum kost á að vinna á sínu eigin móðurmáli. Á námskeiðinu verður farið yfir hugmyndir að verkaskiptingu og sérhæfingu nemenda til að auka líkurnar á því að allir nemendur hafi hlutverk við hæfi.
- Verkefnin eru tíu.
- Hæfniviðmiðin sem liggja að baki eru tuttugu og níu.
- Námsgreinar: Erlend tungumál, íslenska, list- og verkgreinar, lykilhæfni og samfélagsfræði
- Námsmarkmið og viðmið um árangur: Öll verkefni þemans eru tengd hæfniviðmiðum aðalnámskrár. Hverju verkefni fylgja námsmarkmið og ítarleg viðmið um árangur fyrir nemendur.
- Grunnþættir: Verkefnaferlið er unnið út frá grunnþættinum jafnrétti en verkefnin uppfylla einnig markmið grunnþáttanna sjálfbærni, sköpunar og læsis.
Markmið námskeiðsins
Markmið námskeiðsins byggja á reglugerð um hæfniramma með viðmiðum fyrir almenna og sérhæfða hæfni kennara og skólastjórnenda við leik-, grunn- og framhaldsskóla.
- Festa í sessi starfshætti leiðsagnarnáms og samþættingu námsgreina.
- Efla færni kennara til að mæta betur námslegum þörfum ólíkra nemenda.
- Efla færni til að nýta árangursríkar aðferðir sem hafa jákvæð áhrif á hegðun, líðan og félagsfærni barna og stuðla að farsæld þeirra.
- Efla færni í að aðlaga inntak náms- og greinasviða í samræmi við aldur, þroska og þarfir nemenda.
- Efla færni til að nýta stafræna tækni og lykilhæfni í kennslu.
- Efla færni til að setja viðeigandi námsmarkmið með nemendum og styðja við framfarir þeirra í námi.
- Efla færni til að nýta gagnreyndar aðferðir við kennslu.
- Efla færni kennara til að nýta sveigjanlega náms- og kennsluhætti sem örva þroska og efla áhuga nemenda.
- Efla færni kennara til að nýta árangursríkar aðferðir sem stuðla að lýðræðislegri þátttöku allra nemenda og auka áhrif þeirra á eigið nám.
Styrkur
- Kennarar geta sótt um styrk til Kí
- Kennarar geta skráð námskeiðið sem persónulega endurmenntun og fengið sérstakt viðurkenningarskjal með staðfestingu á hæfni
Kennarar á námskeiðum Ásgarðs
Anna María Þorkelsdóttir - Kennsluráðgjafi, námsgagnahöfnundur og sérfræðingur í leiðsagnarnámi og upplýsingatækni
Kristrún Lind Birgisdóttir - Kennsluráðgjafi, námsgagnahöfundur og framkvæmdastjóri
Tinna Björk Pálsdóttir - Kennsluráðgjafi, námsgagnahöfnundur og sérfræðingur í leiðsagnarnámi og upplýsingatækni
--------------
**Þetta námskeið er einnig fáanlegt sem námskeið fyrir starfsdaga. Hentar vel sem hálfur eða heill dagur fer eftir stærð skóla. Vinsamlegast hafið samband við Önnu Maríu annamaria@ais.is eða Kristrúnu kristrun@ais.is