Hrekkjavaka - Kennsluleiðbeiningar fyrir miðstig
Hrekkjavaka - Kennsluleiðbeiningar fyrir miðstig
Áætluð lengd: 10-16 kennslustundir.
Grunnþættir: Sköpun og læsi
Námsgreinar: Enska, íslenska, list- og verkgreinar, lykilhæfni, samfélagsfræði og upplýsinga- og tæknimennt.
Miðstig: Þetta verkefni er skrifað fyrir miðstig. Einnig er til svipað verkefni fyrir unglinga- og yngsta stig. Þetta skjal er breytanlegt og kennarar eru hvattir til að aðlaga framsetningu eftir því sem við á.
Námsmarkmið: Meginmarkmið þessa þema eru að þjálfa nemendur í sjálfstæðum og skapandi vinnubrögðum, efla enskukunnáttu þeirra, kynna þeim sögu hrekkjavökunnar, styrkja sjálfstraust og bæta bekkjaranda og samheldni.
Í þessu þema fást nemendur við drauga, hrylling og fleira hræðilega skemmtilegt sem tengist hrekkjavökunni. Nemendur vinna meðal annars með texta á ensku og íslensku, skrifa handrit, búa til kvikmynd og setja upp skemmtun. Nemendur halda utan um vinnu sína í vinnuskjali sem getur verið á pappír eða rafrænt. Námsefnið er sett fram sem efni eða amboð. Nemendur geta líka valið sér sitt eigið efni eða ítarefni. Allt þemað er óháð ákveðnu námsefni. Í þessu verkefni er gert ráð fyrir að nemendur noti aðeins endurnýtt efni í leikmuni, skreytingar og búninga. Gott er að kennarar taki til það námsefni sem til er í skólanum og leggi fram, svo það sé aðgengilegt nemendum í kennslustofunni.