Sleppa vöruupplýsingum
1 af 1

Hver er ég. Fáanlegt sem starfsdagur.

Hver er ég. Fáanlegt sem starfsdagur.

Verð 175.300 kr.
Verð Útsöluverð 175.300 kr.
Útsala Uppselt
Virðisaukaskattur innifalinn ef við á Sendingarkostnaður reiknast út frá magni ef við á

Viltu efla þig í starfi, fá innblástur og hagnýtar hugmyndir sem hægt er að nota strax í kennslu? Viltu styrkja þekkingu þína á leiðsagnarnámi og samþættingu verkefna? Viltu slá tvær flugur í einu höggi með því að koma á námskeið þar sem þú undirbýrð kennsluna í leiðinni? Þá eru námskeiðin okkar fyrir þig.

Á námskeiðum Ásgarðs fá kennarar tækifæri til að kynna sér gæðarýnd þemaverkefni og verkefnapakka sem hafa lykilhæfni að leiðarljósi. Hvert skref er vandlega skipulagt og hvert viðfangsefni útskýrt ítarlega með skýrum námsmarkmiðum, viðmiðum um árangur og hugmyndum að bókum og kennslutækjum. Með námskeiðunum spara kennarar sér gríðarlega mikinn undirbúningstíma og samþætta starfsþróun og undirbúning kennslu. Kennarar læra jafnframt að gæðarýna eigin verkefni og aðlaga samþættingarverkefni að aldri nemenda og aðstæðum í hverjum skóla. 

Fyrirkomulag 

  • Námskeiðin fara fram á netinu og standa í tvo klukkutíma í senn - eða fara fram á einum heilum eða tveimur hálfum starfsdögum
    • Í fyrri hlutanum er eðli og innihald þemapakkanna kynnt, ásamt leiðum til að laga þá að hverjum skóla eða nemendahópi fyrir sig. 
    • Í seinni hlutanum er fyrirlestur um gæðarýni og leitast við að leysa vandamál sem upp hafa komið í kennslunni og miðla góðum hugmyndum áfram. 
  • Ítarlegur þemaverkefnipakki fyrir yngsta, mið og unglingastig fylgja með.  Breytanleg skjöl með ítarlegum kennsluáætlunum sem auðvelda kennurum að laga kennsluna að þörfum og aðstæðum hverju sinni. 

Á þessu hagnýta námskeiði læra kennarar að nota þemaverkefnið Hver er ég? þar sem nemendur búa til hefti, bók eða vefsíðu sem fjallar um þá sjálfa. Bókin er lögð til grundvallar í nemendastýrðu viðtali við aðstandendur. 

Í námsferlinu læra nemendur að þekkja eigin styrkleika og setja sér markmið sem tengjast bæði námi og félagslegum þáttum. Þeir æfa sig að vinna texta eftir beinagrind og undirbúa viðtöl. Verkefnin í Hver er ég? þjálfa nemendur meðal annars í tjáningu, skipulagningu og ferlisritun og hjálpa þeim að velta fyrir sér áhrifum fyrirmynda. Nemendur með annað tungumál en íslensku sem móðurmál geta unnið bókina á sínu eigin móðurmáli ef það hentar betur. Hver er ég? er samþætt heildstætt þema sem auðvelt er að laga að áherslum skólaársins í hverjum hópi eða skóla. Verkefnin eru yfirleitt unninn með nemendum á um það bil fjórum vikum. Hver er ég? getur verið góður grunnur að ferilmöppu eða reglubundnum nemendastýrðum viðtölum sem ná yfir allt skólaárið. Fjölmargir kennarar hafa á síðustu árum notað Hver er ég? verkefnapakkann með góðum árangri. Hver er ég? er ótrúlega skemmtileg leið til að virkja og efla nemendur, gera þeim kleift að vinna með persónumiðaða ritun og hjálpa þeim að taka á ábyrgð á náminu.

  • Verkefnin eru þrettán.
  • Hæfniviðmiðin sem liggja að baki eru þrjátíu.
  • Samþætting námsgreinanna: Íslenska, list- og verkgreinar, lykilhæfni, náttúrugreinar, samfélagsgreinar, upplýsinga- og tæknimennt.
  • Námsmarkmið og viðmið um árangur: Öll verkefni þemans eru tengd hæfniviðmiðum aðalnámskrár. Hverju verkefni fylgja námsmarkmið og ítarleg viðmið um árangur fyrir nemendur. 
  • Grunnþættir: Verkefnaferlið er unnið út frá grunnþættinum heilbrigði og velferð en einnig er unnið með grunnþættina sköpun og læsi.

Markmið námskeiðsins 

Markmið námskeiðsins byggja á reglugerð um hæfniramma með viðmiðum fyrir almenna og sérhæfða hæfni kennara og skólastjórnenda við leik-, grunn- og framhaldsskóla. 

  • Festa í sessi starfshætti leiðsagnarnáms og samþættingu námsgreina.
  • Efla færni kennara til að mæta betur námslegum þörfum ólíkra nemenda. 
  • Efla færni til að nýta árangursríkar aðferðir sem hafa jákvæð áhrif á hegðun, líðan og félagsfærni barna og stuðla að farsæld þeirra. 
  • Efla færni í að aðlaga inntak náms- og greinasviða í samræmi við aldur, þroska og þarfir nemenda. 
  • Efla færni til að nýta stafræna tækni og lykilhæfni í kennslu. 
  • Efla færni til að setja viðeigandi námsmarkmið með nemendum og styðja við framfarir þeirra í námi. 
  • Efla færni til að nýta gagnreyndar aðferðir við kennslu. 
  • Efla færni kennara til að nýta sveigjanlega náms- og kennsluhætti sem örva þroska og efla áhuga nemenda.
  • Efla færni kennara til að nýta árangursríkar aðferðir sem stuðla að lýðræðislegri þátttöku allra nemenda og auka áhrif þeirra á eigið nám. 

Styrkur

  • Kennarar geta sótt um styrk til Kí 
  • Kennarar geta skráð námskeiðið sem persónulega endurmenntun og fengið sérstakt viðurkenningarskjal með staðfestingu á hæfni 

Kennarar á námskeiðum Ásgarðs   

Anna María Þorkelsdóttir - Kennsluráðgjafi, námsgagnahöfnundur og sérfræðingur í leiðsagnarnámi og upplýsingatækni 

Kristrún Lind Birgisdóttir - Kennsluráðgjafi, námsgagnahöfundur og framkvæmdastjóri

Tinna Björk Pálsdóttir - Kennsluráðgjafi, námsgagnahöfnundur og sérfræðingur í leiðsagnarnámi og upplýsingatækni

--------------

**Þetta námskeið er einnig fáanlegt sem námskeið fyrir starfsdaga. Hentar vel sem hálfur eða heill dagur fer eftir stærð skóla. Vinsamlegast hafið samband við Önnu Maríu annamaria@ais.is eða Kristrúnu kristrun@ais.is 

Skoða allar upplýsingar