Kenndu mér áhugasviðsverkefni - Kennsluleiðbeiningar fyrir ungingastig
Kenndu mér áhugasviðsverkefni - Kennsluleiðbeiningar fyrir ungingastig
Þetta þemaverkefni er góð leið til þess að koma krökkum af stað með áhugasviðsvinnu, efla sjálfstraust þeirra og kenna þeim vönduð vinnubrögð.
Viðfangsefnin sem nemendur velja skipta í raun engu máli. Nemandinn velur eitthvað sem hann kann og býr til kennslumyndband með texta.
Það er mjög mikilvægt að kennari kynni sér ferlið áður en lagt er af stað, fylgi því og haldi því að nemendum.
Ferlið sjálft (og þar með vinnubrögðin) eru ekki síður mikilvæg en útkoman (sjálft myndbandið).
Kenndu mér er heildstætt ferli. Ef kennarar ákveða að gera breytingar á ferlinu þá er gott að renna yfir alla liði áður en einstökum verkefnum er breytt, svo samhengi og röð aðgerða haldið rökrétt.
Áætluð lengd: Nemendur ákvarða umfang og lengd verkefnisins,
Grunnþáttur: Sköpun og læsi auk annarra, allt eftir viðfangsefnum nemenda.
Námsgreinar: Lykilhæfni, tungumál, ritun, UT og fleira, allt eftir áherslum nemenda.
Stig: Unglingastig
Námsmarkmið: Nemendur læra að búa til leiðbeiningar í formi kennslumyndbands. Í ferlinu þjálfast nemendur meðal annars í góðum og skipulögðum vinnubrögðum, styrkja samvinnu í hópnum og efla sjálfstraust.