Sleppa vöruupplýsingum
1 af 1

Koma jól. Fáanlegt sem starfsdagur.

Koma jól. Fáanlegt sem starfsdagur.

Verð 175.300 kr.
Verð Útsöluverð 175.300 kr.
Útsala Uppselt
Virðisaukaskattur innifalinn ef við á Sendingarkostnaður reiknast út frá magni ef við á

Viltu efla þig í starfi, fá innblástur og hagnýtar hugmyndir sem hægt er að nota strax í kennslu? Viltu styrkja þekkingu þína á leiðsagnarnámi og samþættingu verkefna? Viltu slá tvær flugur í einu höggi með því að koma á námskeið þar sem þú undirbýrð kennsluna í leiðinni? Þá eru námskeiðin okkar fyrir þig.

Á námskeiðum Ásgarðs fá kennarar tækifæri til að kynna sér gæðarýnd þemaverkefni og verkefnapakka sem hafa lykilhæfni að leiðarljósi. Hvert skref er vandlega skipulagt og hvert viðfangsefni útskýrt ítarlega með skýrum námsmarkmiðum, viðmiðum um árangur og hugmyndum að bókum og kennslutækjum. Með námskeiðunum spara kennarar sér gríðarlega mikinn undirbúningstíma og samþætta starfsþróun og undirbúning kennslu. Kennarar læra jafnframt að gæðarýna eigin verkefni og aðlaga samþættingarverkefni að aldri nemenda og aðstæðum í hverjum skóla. 

Fyrirkomulag 

  • Námskeiðin fara fram á netinu og standa í tvo klukkutíma í senn - eða fara fram á einum heilum eða tveimur hálfum starfsdögum.
    • Í fyrri hlutanum er eðli og innihald þemapakkanna kynnt, ásamt leiðum til að laga þá að hverjum skóla eða nemendahópi fyrir sig. 
    • Í seinni hlutanum er fyrirlestur um gæðarýni og leitast við að leysa vandamál sem upp hafa komið í kennslunni og miðla góðum hugmyndum áfram.
  • Ítarlegur þemaverkefnipakki fyrir yngsta, mið og unglingastig fylgja með.  Breytanleg skjöl með ítarlegum kennsluáætlunum sem auðvelda kennurum að laga kennsluna að þörfum og aðstæðum hverju sinni. 

 

Á þessu hagnýta námskeiði læra kennarar að nota þemaverkefnið Jólin koma, koma jól? þar sem nemendur vinna með bókmenntahefð okkar á nýjan og ferskan hátt í gegnum ljóðabækurnar Jólin Koma eftir Jóhannes úr Kötlum og Koma Jól? þar sem Hallgrímur Helgason kveðst á við Jóhannes.

Í námsferlinu læra nemendur meðal annars að beita hugtökunum jafnrétti og misrétti. Þeir læra að setja á sig kynjagleraugun og velta fyrir sér kynhlutverkum, kynnast mætti greinarmerkja og rýna í jólahefðir og þróun jafnréttis út frá þjóðsögum um jólasveina. Nemendur á yngsta stigi vinna eingöngu með bók Jóhannesar en áherslurnar eru þær sömu á öllum stigum. 

Jólin koma, koma jól? er heildstætt þemaverkefni sem hægt er að vinna á um það bil fjórum vikum. Afurðir verkefnisins geta til dæmis verið sögur, listaverk, ljóðabálkar, leikþættir eða hlaðvörp, allt eftir áhugasviði nemenda og því sem hentar hverju sinni. Lokaafurðunum er gert hátt undir höfði og nemendur leyfa öðrum að njóta þeirra í lokin. Námsferlið er frekar stýrt og því er mikilvægt að sjá fyrir sér hvaða leiðir eru færar ef nemendur eiga erfitt með að finna sig í verkefninu. Það verður rætt sérstaklega á námskeiðinu. 

Jólin koma, koma jól? er samþætt heildstætt þemaverkefni sem gefur þjóðsögum, ljóðagerð og lífi Íslendinga fyrr og nú nýjan blæ. Þeir kennarar sem hafa nýtt sér verkefnið hafa verið mjög ánægðir með þessa leið. 

  • Verkefnin eru tíu.
  • Hæfniviðmiðin sem liggja að baki eru tuttugu og níu
  • Námsgreinar: Íslenska, list- og verkgreinar, lykilhæfni, samfélagsgreinar, upplýsinga- og tæknimennt. 
  • Námsmarkmið og viðmið um árangur: Öll verkefni þemans eru tengd hæfniviðmiðum aðalnámskrár. Hverju verkefni fylgja námsmarkmið og ítarleg viðmið um árangur fyrir nemendur. 
  • Grunnþættir: Verkefnaferlið er unnið út frá grunnþættinum sköpun en verkefnin uppfylla einnig markmið grunnþáttarins læsis.

 

Markmið námskeiðsins 

Markmið námskeiðsins byggja á reglugerð um hæfniramma með viðmiðum fyrir almenna og sérhæfða hæfni kennara og skólastjórnenda við leik-, grunn- og framhaldsskóla. 

  • Festa í sessi starfshætti leiðsagnarnáms og samþættingu námsgreina.
  • Efla færni kennara til að mæta betur námslegum þörfum ólíkra nemenda. 
  • Efla færni til að nýta árangursríkar aðferðir sem hafa jákvæð áhrif á hegðun, líðan og félagsfærni barna og stuðla að farsæld þeirra. 
  • Efla færni í að aðlaga inntak náms- og greinasviða í samræmi við aldur, þroska og þarfir nemenda. 
  • Efla færni til að nýta stafræna tækni og lykilhæfni í kennslu. 
  • Efla færni til að setja viðeigandi námsmarkmið með nemendum og styðja við framfarir þeirra í námi. 
  • Efla færni til að nýta gagnreyndar aðferðir við kennslu. 
  • Efla færni kennara til að nýta sveigjanlega náms- og kennsluhætti sem örva þroska og efla áhuga nemenda.
  • Efla færni kennara til að nýta árangursríkar aðferðir sem stuðla að lýðræðislegri þátttöku allra nemenda og auka áhrif þeirra á eigið nám. 

Styrkur

  • Kennarar geta sótt um styrk til Kí 
  • Kennarar geta skráð námskeiðið sem persónulega endurmenntun og fengið sérstakt viðurkenningarskjal með staðfestingu á hæfni 

Kennarar á námskeiðum Ásgarðs   

Anna María Þorkelsdóttir - Kennsluráðgjafi, námsgagnahöfnundur og sérfræðingur í leiðsagnarnámi og upplýsingatækni 

Kristrún Lind Birgisdóttir - Kennsluráðgjafi, námsgagnahöfundur og framkvæmdastjóri

Tinna Björk Pálsdóttir - Kennsluráðgjafi, námsgagnahöfnundur og sérfræðingur í leiðsagnarnámi og upplýsingatækni

--------------

**Þetta námskeið er einnig fáanlegt sem námskeið fyrir starfsdaga. Hentar vel sem hálfur eða heill dagur fer eftir stærð skóla. Vinsamlegast hafið samband við Önnu Maríu annamaria@ais.is eða Kristrúnu kristrun@ais.is 

Skoða allar upplýsingar