Sleppa vöruupplýsingum
1 af 1

Leiðsagnarnám með áherslu á námsmarkmið og viðmið um árangur (heill dagur).

Leiðsagnarnám með áherslu á námsmarkmið og viðmið um árangur (heill dagur).

Verð 175.300 kr.
Verð Útsöluverð 175.300 kr.
Útsala Uppselt
Virðisaukaskattur innifalinn ef við á Sendingarkostnaður reiknast út frá magni ef við á
  • Heiti: Leiðsagnarnám með áherslu á námsmarkmið og viðmið um árangur
  • Lengd: Heill dagur
  • Staðsetning: Fjarnámskeið eða staðnámskeið. 

Markmið námskeiðsins/starfsdags:

  • Aðalmarkmiðið er að dýpka skilning kennara á leiðsagnarnámi, með sérstakri áherslu á mótun og nýtingu skýrra námsmarkmiða og viðmiða um árangur sem styðja við námsframvindu og farsæld nemenda.
    • Notkun matskvarða og gátlista.
    • Uppbyggileg endurgjöf. 
    • Virk þátttaka nemenda í náminu.
    • Samtöl og samræða í námi.
    • Leiðir til að auka sjálfstæði og ábyrgð nemenda.

Inntak og fyrirkomulag: Námskeiðið hefst á fræðsluerindi þar sem kynntar verða áherslur námskeiðsins, nýjustu kröfur Aðalnámskrár, OECD og Unesco og hagnýt nálgun á innleiðingu þeirra í skólastarfi, með sérstakri áherslu á gæðastarf

Eftir fræðsluerindið er hópnum skipt niður svo þátttakendur geti tengt efnið við eigið starfsumhverfi, greint styrkleika í starfi sínu og fundið tækifæri til umbóta. Áhersla er lögð á að kennarar geti sett sér markmið um að innleiða ákveðna þætti og skapað lærdómssamfélag um innleiðinguna innan skólans. 

Styrkur

  • Kennarar geta sótt um styrk til KÍ.
  • Kennarar geta skráð námskeiðið sem persónulega endurmenntun og fengið sérstakt viðurkenningarskjal með staðfestingu á hæfni.

Kennarar á námskeiðum Ásgarðs   

Anna María Þorkelsdóttir - Kennsluráðgjafi, námsgagnahöfundur og sérfræðingur í leiðsagnarnámi og upplýsingatækni.

Kristrún Lind Birgisdóttir - Kennsluráðgjafi, námsgagnahöfundur og framkvæmdastjóri.

Tinna Björk Pálsdóttir - Kennsluráðgjafi, námsgagnahöfundur og sérfræðingur í leiðsagnarnámi og upplýsingatækni.


Skoða allar upplýsingar