Sleppa vöruupplýsingum
1 af 1

Ritunarramminn - Hagnýtar leiðir til að innleiða starfshætti sem styðja við Ritunarramma MMS (Heill dagur)

Ritunarramminn - Hagnýtar leiðir til að innleiða starfshætti sem styðja við Ritunarramma MMS (Heill dagur)

Verð 175.300 kr.
Verð Útsöluverð 175.300 kr.
Útsala Uppselt
Virðisaukaskattur innifalinn ef við á Sendingarkostnaður reiknast út frá magni ef við á
  • Heiti: Ritunarramminn - Hagnýtar leiðir til að innleiða starfshætti sem styðja við Ritunarramma MMS 
  • Lengd: Heill dagur
  • Staðsetning: Fjarnámskeið eða staðnámskeið. 

Námskeiðinu fylgja ítarlegar kennsluáætlanir sem kennarar geta nýtt sér strax að námskeiði loknu. 

Markmið námskeiðsins/starfsdags:

  • Meginmarkmiðið er að fara yfir hagnýtar leiðir til þess að kenna mismunandi textategundir, það er sögugerð, gerð fræðitexta og rökfærslutexta þar sem áhersla er lögð á skapandi, nemendastýrð og skemmtileg ritunarverkefni fyrir nemendur. 
  • Ritunarramminn og leiðsagnarnám, tengls og hagnýtar leiðir.
  • Námskeiðið er sniðið að þörfum kennara á yngsta-, mið- og unglingastigi og hentar heilum skólum eða stigum innan skóla.  

Inntak og fyrirkomulag: Námskeiðið hefst á fræðsluerindi þar sem kynntar verða áherslur námskeiðsins, nýjustu kröfur Aðalnámskrár, OECD og Unesco og hagnýt nálgun á innleiðingu þeirra í skólastarfi, með sérstakri áherslu á gæðastarf

Eftir fræðsluerindið er hópnum skipt svo þátttakendur geti tengt efnið við eigið starfsumhverfi, greint styrkleika í starfi sínu og fundið tækifæri til umbóta. Áhersla er lögð á að kennarar geti sett sér markmið um að innleiða ákveðna þætti og skapað lærdómssamfélag um innleiðinguna innan skólans. 

Styrkur

  • Kennarar geta sótt um styrk til KÍ. 
  • Kennarar geta skráð námskeiðið sem persónulega endurmenntun og fengið sérstakt viðurkenningarskjal með staðfestingu á hæfni. 

Kennarar á námskeiðum Ásgarðs   

Anna María Þorkelsdóttir - Kennsluráðgjafi, námsgagnahöfundur og sérfræðingur í leiðsagnarnámi og upplýsingatækni 

Kristrún Lind Birgisdóttir - Kennsluráðgjafi, námsgagnahöfundur og framkvæmdastjóri

Tinna Björk Pálsdóttir - Kennsluráðgjafi, námsgagnahöfundur og sérfræðingur í leiðsagnarnámi og upplýsingatækni

Ritunarrammi MMS: https://island.is/handbaekur/ritunarramminn-handbok-um-notkun

Skoða allar upplýsingar