Sleppa vöruupplýsingum
1 af 1

Skólablaðið. Fáanlegt sem starfsdagur.

Skólablaðið. Fáanlegt sem starfsdagur.

Verð 175.300 kr.
Verð Útsöluverð 175.300 kr.
Útsala Uppselt
Virðisaukaskattur innifalinn ef við á Sendingarkostnaður reiknast út frá magni ef við á

Viltu efla þig í starfi, fá innblástur og hagnýtar hugmyndir sem hægt er að nota strax í kennslu? Viltu styrkja þekkingu þína á leiðsagnarnámi og samþættingu verkefna? Viltu slá tvær flugur í einu höggi með því að koma á námskeið þar sem þú undirbýrð kennsluna í leiðinni? Þá eru námskeiðin okkar fyrir þig.

Á námskeiðum Ásgarðs fá kennarar tækifæri til að kynna sér gæðarýnd þemaverkefni og verkefnapakka sem hafa lykilhæfni að leiðarljósi. Hvert skref er vandlega skipulagt og hvert viðfangsefni útskýrt ítarlega með skýrum námsmarkmiðum, viðmiðum um árangur og hugmyndum að bókum og kennslutækjum. Með námskeiðunum spara kennarar sér gríðarlega mikinn undirbúningstíma og samþætta starfsþróun og undirbúning kennslu. Kennarar læra jafnframt að gæðarýna eigin verkefni og aðlaga samþættingarverkefni að aldri nemenda og aðstæðum í hverjum skóla. 

Fyrirkomulag 

  • Námskeiðin fara fram á netinu og standa í tvo klukkutíma í senn - eða fara fram á einum heilum eða tveimur hálfum starfsdögum
    • Í fyrri hlutanum er eðli og innihald þemapakkanna kynnt, ásamt leiðum til að laga þá að hverjum skóla eða nemendahópi fyrir sig. 
    • Í seinni hlutanum er fyrirlestur um gæðarýni og leitast við að leysa vandamál sem upp hafa komið í kennslunni og miðla góðum hugmyndum áfram.
  • Ítarlegur þemaverkefnipakki fyrir yngsta, mið og unglingastig fylgja með.  Breytanleg skjöl með ítarlegum kennsluáætlunum sem auðvelda kennurum að laga kennsluna að þörfum og aðstæðum hverju sinni. 

Á þessu hagnýta námskeiði læra kennarar að nota þemaverkefnið Skólablað, þar sem nemendur skrifa skólablað og gefa það út. Í námsferlinu læra nemendur meðal annars ferilsritun og æfa sig að skrifa villulausan texta með því að skrifa fréttir og greinar af ýmsu tagi. Í námsferlinu er sérstaklega gert ráð fyrir mögulegri verkaskiptingu. Þannig má til dæmis fela hluta hópsins ritstjórn, öðrum myndvinnslu og svo framvegis. Skólablaðið er námsferli sem þjálfar margar tegundir ritunar. Það er hægt að endurtaka námsferlið oft með minni háttar breytingum, til dæmis með því að nota önnur tungumál, breyta efnisvalinu, gefa út blað um afmarkað efni eða stunda rannsóknarblaðamennsku með rannsóknarspurningum. Lokaútgáfan getur líka verið fréttastofa með útvarpsfréttum, sjónvarpsefni eða vefútgáfa. 

Á námskeiðinu verður einnig farið yfir það hvernig þemaverkefnið Skólablaðið getur nýst til að kortleggja fimm hliðar læsis á öllum skólastigum. 

Skólablaðið er samþætt heildstætt þemaverkefni sem er hugsað sem verkefni fyrir 2-4 vikur. Hægt er að breyta, bæta og endurtaka verkefnið með fjölmörgum einföldum leiðum. Skólablaðið er gagnleg, einföld og skemmtileg leið fyrir kennara til að eflast í leiðsagnarnámi í gegnum verkefni sem auðvelt er að skilja og framkvæma. 

  • Verkefnin eru fimmtán
  • Hæfniviðmiðin sem liggja að baki eru sextán Í verkefninu eru tengingar við læsisstefnuna Læsi er lykillinn.
  • Tími: Skólablaðið er verkefni sem tekur um það bil 2-4 vikur í vinnu með nemendum og sparar kennurum gríðarlega mikinn undirbúningstíma! 
  • Námsgreinar: Íslenska, lykilhæfni og upplýsinga- og tæknimennt. 
  • Námsmarkmið og viðmið um árangur: Öll verkefni þemans eru tengd hæfniviðmiðum aðalnámskrár. Hverju verkefni fylgja námsmarkmið og ítarleg viðmið um árangur fyrir nemendur. 
  • Grunnþættir: Verkefnaferlið er unnið út frá grunnþættinum sköpun en uppfyllir líka grunnþáttinn læsi.

Markmið námskeiðsins 

Markmið námskeiðsins byggja á reglugerð um hæfniramma með viðmiðum fyrir almenna og sérhæfða hæfni kennara og skólastjórnenda við leik-, grunn- og framhaldsskóla. 

  • Festa í sessi starfshætti leiðsagnarnáms og samþættingu námsgreina.
  • Efla færni kennara til að mæta betur námslegum þörfum ólíkra nemenda. 
  • Efla færni til að nýta árangursríkar aðferðir sem hafa jákvæð áhrif á hegðun, líðan og félagsfærni barna og stuðla að farsæld þeirra. 
  • Efla færni í að aðlaga inntak náms- og greinasviða í samræmi við aldur, þroska og þarfir nemenda. 
  • Efla færni til að nýta stafræna tækni og lykilhæfni í kennslu. 
  • Efla færni til að setja viðeigandi námsmarkmið með nemendum og styðja við framfarir þeirra í námi. 
  • Efla færni til að nýta gagnreyndar aðferðir við kennslu. 
  • Efla færni kennara til að nýta sveigjanlega náms- og kennsluhætti sem örva þroska og efla áhuga nemenda.
  • Efla færni kennara til að nýta árangursríkar aðferðir sem stuðla að lýðræðislegri þátttöku allra nemenda og auka áhrif þeirra á eigið nám. 

Styrkur

  • Kennarar geta sótt um styrk til Kí 
  • Kennarar geta skráð námskeiðið sem persónulega endurmenntun og fengið sérstakt viðurkenningarskjal með staðfestingu á hæfni 

Kennarar á námskeiðum Ásgarðs   

Anna María Þorkelsdóttir - Kennsluráðgjafi, námsgagnahöfnundur og sérfræðingur í leiðsagnarnámi og upplýsingatækni 

Kristrún Lind Birgisdóttir - Kennsluráðgjafi, námsgagnahöfundur og framkvæmdastjóri

Tinna Björk Pálsdóttir - Kennsluráðgjafi, námsgagnahöfnundur og sérfræðingur í leiðsagnarnámi og upplýsingatækni

--------------

**Þetta námskeið er einnig fáanlegt sem námskeið fyrir starfsdaga. Hentar vel sem hálfur eða heill dagur fer eftir stærð skóla. Vinsamlegast hafið samband við Önnu Maríu annamaria@ais.is eða Kristrúnu kristrun@ais.is 

Skoða allar upplýsingar