Tækni - Kennsluleiðbeiningar fyrir miðstig
Tækni - Kennsluleiðbeiningar fyrir miðstig
Verkefnið er 27 námseiningar í sjö hlutum sem hægt er að taka fyrir í einu samfelldu þema eða að brjóta niður í fjögur samfelld þemu.
Fyrsti hlutinn er kveikja og forþekkingarvinna. Þá tekur við annar hluti „Tækni í umhverfi okkar“ þar sem fjallað er um tækni í okkar nánasta umhverfi. Nemendur skoða tæknina í kringum sig, útbúa líkan af tæki sem þeim finnst mikilvægt og velta fyrir sér áhrifum tækninnar á sitt nánasta umhverfi. „Samgöngur og tækni“ er þriðji hlutinn, þar sem nemendur skoða þróun samgangna út frá bókinni Around the World in 80 days og læra um þróun samgangna á ensku. Í fjórða hlutanum „Híbýli og tækni“ útbúa nemendur meðal annars líkan af draumaherberginu sínu og tengja saman stærðfræði og líkanagerð. Þeir íhuga framtíðina og hvernig framtíðartækni getur birst á heimilum. Í fimmta hlutanum „Heilsa og tækni“ vinna nemendur fyrst með bókina Vélmennið í grasinu. (Það er gott að byrja að lesa bókina strax í upphafi þemans, þannig að lestrinum sé lokið þegar að þessum hluta kemur). Næst búa nemendur til vélmenni og hreyfibraut. Að lokum er sjötti og síðasti hlutinn tvö STEAM verkefni sem hægt er að grípa í eða vinna síðast.
- Áætluð lengd: Heildartímafjöldi getur verið til dæmis 2x2 kennslustundir á viku í 6 vikur eða 24 tímar. Hægt er að láta valverkefnin taka smám saman við, þegar hóparnir ljúka sínum verkefnum. Það er auðvelt að fara dýpra í verkefni og nota meiri tíma í hvert þeirra. Þannig má til dæmis gefa þemaverkefninu fasta tíma í töflu nemenda í eina önn eða heilt skólaár. Sumar námseiningar má gjarna vinna með í nokkrar kennslustundir. Mikilvægt er að kennarar lesi þemaverkefnið vel í gegn og geri þær breytingar sem henta hverju sinni. Það er gert ráð fyrir að námslotan sé samfelld en þó er auðvelt að taka einstök verkefni út og vinna með þau sér.
- Námsgreinar:Í slenska, list- og verkgreinar, lykilhæfni, náttúrugreinar, enska, samfélagsgreinar, stærðfræði og UT. STEM vinna er samþætt inn í námsferlið og svo fylgja viðbótarverkefni með í lokin.
- Miðstig: Þetta þemaverkefni er skrifað fyrir miðstig. Verkefnið má þó auðveldlega vinna með eldri nemendum, með því að uppfæra hæfniviðmiðin og aðlaga viðfangsefnin. Megináhersla þessa verkefnis er þjálfun í frumkvöðla- og nýsköpunarhugsun.