Sleppa vöruupplýsingum
1 af 1

Tækni - Kennsluleiðbeiningar fyrir ungingastig

Tækni - Kennsluleiðbeiningar fyrir ungingastig

Verð 1.700 kr.
Verð Útsöluverð 1.700 kr.
Útsala Uppselt
Virðisaukaskattur innifalinn ef við á Sendingarkostnaður reiknast út frá magni ef við á

Verkefnið er 26 námseiningar í sjö hlutum sem hægt er að taka fyrir í einu samfelldu þema eða að brjóta niður í smærri þemu.

Fyrsti hlutinn er kveikja og forþekkingarvinna. Þá tekur við annar hluti „Tækni í umhverfi okkar“ þar sem fjallað er um tækni í okkar nánasta umhverfi. Nemendur skoða tæknina í kringum sig, útbúa líkan af tæki sem þeim finnst mikilvægt og velta fyrir sér áhrifum tækninnar á sitt nánasta umhverfi. „Samgöngur og tækni“ er þriðji hlutinn, þar sem nemendur skoða þróun samgangna á ensku út frá bókinni Around the World in 80 days. (Það er gott að byrja að lesa bókina strax í upphafi þemans, þannig að lestrinum sé lokið þegar að þessum hluta kemur). Nemendur skoða kolefnisfótspor ferðalaga, framtíðarfarartæki og fleira. Í fjórða hlutanum „Tækni og samfélag“ kynna nemendur sér uppfinningar fortíðar, hanna herbergi framtíðarunglings og vinna að nýsköpun. Í fimmta hlutanum „Heilsa og tækni“ kynna nemendur sér samhengi kyrrsetu og tækni, mæla eigin hreyfingu, útbúa æfingaáætlanir og kynna sér heilsutækni. Þemað endar á tæknisýningu þar sem nemendur taka saman það sem þeir hafa lært og kynna afurðir þemans.

  • Áætluð lengd: Heildartímafjöldi getur verið til dæmis 2x2 kennslustundir á viku í 8 vikur eða 32 tímar. Það er auðvelt að fara dýpra í verkefni og nota meiri tíma í hvert þeirra. Þannig má til dæmis gefa þemaverkefninu fasta tíma í töflu nemenda í eina önn eða heilt skólaár. Sumar námseiningar má gjarna vinna með í nokkrar kennslustundir. Mikilvægt er að kennarar lesi þemaverkefnið vel í gegn og geri þær breytingar sem henta hverju sinni. Það er gert ráð fyrir að námslotan sé samfelld en þó er auðvelt að taka einstök verkefni út og vinna með þau sér.
  • Námsgreinar: Íslenska, list- og verkgreinar, lykilhæfni, náttúrugreinar, enska, samfélagsgreinar, stærðfræði og UT. STEM vinna er samþætt inn í námsferlið og svo fylgir viðbótarverkefni með í lokin.
  • Elsta stig: Þetta þemaverkefni er skrifað fyrir elsta stig. Verkefnið má þó auðveldlega vinna með yngri nemendum, með því að uppfæra hæfniviðmiðin og aðlaga viðfangsefnin. Megináhersla þessa verkefnis er þjálfun í frumkvöðla- og nýsköpunarhugsun.
Skoða allar upplýsingar