Sleppa vöruupplýsingum
1 af 1

Betra líf. Fáanlegt sem starfsdagur.

Betra líf. Fáanlegt sem starfsdagur.

Verð 175.300 kr.
Verð Útsöluverð 175.300 kr.
Útsala Uppselt
Virðisaukaskattur innifalinn ef við á Sendingarkostnaður reiknast út frá magni ef við á

Viltu efla þig í starfi, fá innblástur og hagnýtar hugmyndir sem hægt er að nota strax í kennslu? Viltu styrkja þekkingu þína á leiðsagnarnámi og samþættingu verkefna? Viltu slá tvær flugur í einu höggi með því að koma á námskeið þar sem þú undirbýrð kennsluna í leiðinni? Þá eru námskeiðin okkar fyrir þig.

Á námskeiðum Ásgarðs fá kennarar tækifæri til að kynna sér gæðarýnd þemaverkefni og verkefnapakka sem hafa lykilhæfni að leiðarljósi. Hvert skref er vandlega skipulagt og hvert viðfangsefni útskýrt ítarlega með skýrum námsmarkmiðum, viðmiðum um árangur og hugmyndum að bókum og kennslutækjum. Með námskeiðunum spara kennarar sér gríðarlega mikinn undirbúningstíma og samþætta starfsþróun og undirbúning kennslu. Kennarar læra jafnframt að gæðarýna eigin verkefni og aðlaga samþættingarverkefni að aldri nemenda og aðstæðum í hverjum skóla. 

Fyrirkomulag 

  • Námskeiðin fara fram á netinu og standa í tvo klukkutíma í senn - eða fara fram á einum heilum eða tveimur hálfum starfsdögum
    • Í fyrri hlutanum er eðli og innihald þemapakkanna kynnt, ásamt leiðum til að laga þá að hverjum skóla eða nemendahópi fyrir sig. 
    • Í seinni hlutanum er fyrirlestur um gæðarýni og leitast við að leysa vandamál sem upp hafa komið í kennslunni og miðla góðum hugmyndum áfram. 
  • Ítarlegur þemaverkefnipakki fyrir yngsta, mið og unglingastig fylgja með.  Breytanleg skjöl með ítarlegum kennsluáætlunum sem auðvelda kennurum að laga kennsluna að þörfum og aðstæðum hverju sinni. 

Á þessu hagnýta námskeiði læra kennarar að nota þemaverkefnið Betra líf, þar sem nemendur skapa sitt eigið samfélag eða þjóðfélag og leggja áherslu á heilbrigði og velferð íbúanna. 

Í námsferlinu læra nemendur um loftgæði, hringrás kolefnis, heilsuvernd, sjálfbærni og næringu með því að skapa líkan af samfélagi jafningja. Nemendur útfæra eigin verkefnalýsingu með verk- og tímaáætlun og vinna samkvæmt henni. Nemendur leysa vandamál, koma hugtökum í rökrétt samhengi og útfæra áherslur sínar, meðal annars í samræmi við Barnasáttmálann og Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Í leiðinni þjálfast nemendur í frumkvöðla- og nýsköpunarmennt.

Betra líf er samþætt heildstætt þemaverkefni sem getur náð yfir allt að sex vikna vinnu með nemendum. Verkefnin eru sveigjanleg. Þannig er hægt að kafa dýpra og nota lengri tíma eða taka minna fyrir í einu yfir lengra tímabil. Hver nemendahópur getur unnið út frá sínu áhugasviði og skapað til dæmis samfélag fótboltamanna, dýraverndara eða skemmtikrafta. Verkefnin einkennast af leik- og sköpunargleði sem gerir nemendum kleift að efla nýsköpunarhæfni sína og takast á við flókin hugtök. 

Í fyrri hlutanum vinna nemendur að verkefnum sem efla skilning þeirra á lykilhugtökum þemans. Verkefnin mynda samfellu sem eflir getu nemenda til að beita lykilhugtökunum og yfirfæra þau á samfélag sem krakkarnir skapa. Þemað endar á sýningu þar sem hóparnir kynna samfélögin sín. 

Verkefnin eru þrjátíu og tvö, þar af níu valverkefni. 

  • Hæfniviðmiðin sem liggja að baki eru sjötíu og þrjú
  • Samþætting námsgreinanna: Íslenska, list- og verkgreinar, lykilhæfni, náttúrugreinar, samfélagsgreinar, stærðfræði, upplýsinga- og tæknimennt. 
  • Námsmarkmið og viðmið um árangur: Hverju verkefni fylgja námsmarkmið og ítarleg viðmið um árangur. 
  • Grunnþættir: Verkefnaferlið er unnið út frá grunnþættinum heilbrigði og velferð en einnig er unnið með grunnþættina sjálfbærni, sköpun og læsi.

Markmið námskeiðsins 

Markmið námskeiðsins byggja á reglugerð um hæfniramma með viðmiðum fyrir almenna og sérhæfða hæfni kennara og skólastjórnenda við leik-, grunn- og framhaldsskóla. 

  • Festa í sessi starfshætti leiðsagnarnáms og samþættingu námsgreina.
  • Efla færni kennara til að mæta betur námslegum þörfum ólíkra nemenda. 
  • Efla færni til að nýta árangursríkar aðferðir sem hafa jákvæð áhrif á hegðun, líðan og félagsfærni barna og stuðla að farsæld þeirra. 
  • Efla færni í að aðlaga inntak náms- og greinasviða í samræmi við aldur, þroska og þarfir nemenda. 
  • Efla færni til að nýta stafræna tækni og lykilhæfni í kennslu. 
  • Efla færni til að setja viðeigandi námsmarkmið með nemendum og styðja við framfarir þeirra í námi. 
  • Efla færni til að nýta gagnreyndar aðferðir við kennslu. 
  • Efla færni kennara til að nýta sveigjanlega náms- og kennsluhætti sem örva þroska og efla áhuga nemenda.
  • Efla færni kennara til að nýta árangursríkar aðferðir sem stuðla að lýðræðislegri þátttöku allra nemenda og auka áhrif þeirra á eigið nám. 

Styrkur

  • Kennarar geta sótt um styrk til Kí 
  • Kennarar geta skráð námskeiðið sem persónulega endurmenntun og fengið sérstakt viðurkenningarskjal með staðfestingu á hæfni 

Kennarar á námskeiðum Ásgarðs   

Anna María Þorkelsdóttir - Kennsluráðgjafi, námsgagnahöfnundur og sérfræðingur í leiðsagnarnámi og upplýsingatækni 

Kristrún Lind Birgisdóttir - Kennsluráðgjafi, námsgagnahöfundur og framkvæmdastjóri

Tinna Björk Pálsdóttir - Kennsluráðgjafi, námsgagnahöfnundur og sérfræðingur í leiðsagnarnámi og upplýsingatækni

--------------

**Þetta námskeið er einnig fáanlegt sem námskeið fyrir starfsdaga. Hentar vel sem hálfur eða heill dagur fer eftir stærð skóla. Vinsamlegast hafið samband við Önnu Maríu annamaria@ais.is eða Kristrúnu kristrun@ais.is 

 

Skoða allar upplýsingar