Sleppa vöruupplýsingum
1 af 1

Betri heimabyggð. Fáanlegt sem starfsdagur.

Betri heimabyggð. Fáanlegt sem starfsdagur.

Verð 175.300 kr.
Verð Útsöluverð 175.300 kr.
Útsala Uppselt
Virðisaukaskattur innifalinn ef við á Sendingarkostnaður reiknast út frá magni ef við á

Viltu efla þig í starfi, fá innblástur og hagnýtar hugmyndir sem hægt er að nota strax í kennslu? Viltu styrkja þekkingu þína á leiðsagnarnámi og samþættingu verkefna? Viltu slá tvær flugur í einu höggi með því að koma á námskeið þar sem þú undirbýrð kennsluna í leiðinni? Þá eru námskeiðin okkar fyrir þig.

Á námskeiðum Ásgarðs fá kennarar tækifæri til að kynna sér gæðarýnd þemaverkefni og verkefnapakka sem hafa lykilhæfni að leiðarljósi. Hvert skref er vandlega skipulagt og hvert viðfangsefni útskýrt ítarlega með skýrum námsmarkmiðum, viðmiðum um árangur og hugmyndum að bókum og kennslutækjum. Með námskeiðunum spara kennarar sér gríðarlega mikinn undirbúningstíma og samþætta starfsþróun og undirbúning kennslu. Kennarar læra jafnframt að gæðarýna eigin verkefni og aðlaga samþættingarverkefni að aldri nemenda og aðstæðum í hverjum skóla. 

Fyrirkomulag 

  • Námskeiðin fara fram á netinu í tvo klukkutíma í senn. 
    • Í fyrri hlutanum er eðli og innihald þemapakkanna kynnt, ásamt leiðum til að laga þá að hverjum skóla eða nemendahópi fyrir sig. 
    • Í seinni hlutanum er fyrirlestur um gæðarýni og leitast við að leysa vandamál sem upp hafa komið í kennslunni og miðla góðum hugmyndum áframi. 
  • Ítarlegur þemaverkefnipakki fyrir yngsta, mið og unglingastig fylgja með.  Breytanleg skjöl með ítarlegum kennsluáætlunum sem auðvelda kennurum að laga kennsluna að þörfum og aðstæðum hverju sinni. 

Dagsetningar

8. janúar. Kl. 14.00 til 16.00

5. febrúar. Kl. 14.00 til 16.00

Á þessu hagnýta námskeiði læra kennarar að nota þemaverkefnið Betri heimabyggð, þar sem nemendur þróa meðal annars umbótatillögur út frá þeirra sjónarhorni og umhverfissjónarmiðum og undirbúa íbúaþing. Verkefnapakkann má auðveldlega laga að lífi í þorpi, bæ eða borg. 

Í námsferlinu læra nemendur meðal annars að hafa áhrif á umhverfi sitt, taka ljósmyndir, taka viðtöl, kynnast félagsmálum í nærumhverfi sínu og halda íbúaþing. Betri heimabyggð er góð leið til að hjálpa nemendum að koma auga á og stuðla að sjálfbærni í umhverfi sínu og skilja betur samfélagið sem þeir búa í. Betri heimabyggð er samþætt heildstætt þema sem oft er unnið á fjórum til sex vikum. Kennari getur valið að fara dýpra í verkefnið og gefa því lengri tíma. Ferlið endar með alvöru íbúaþingi, þingi fyrir leiðtoga samfélagsins eða aðra tengda aðila. Betri heimabyggð er skemmtilegt verkefni sem margir skólar hafa nýtt sér með góðum árangri. 

  • Verkefnin eru tíu.
  • Hæfniviðmiðin sem liggja að baki eru tuttugu og fjögur.
  • Tími: Betri heimabyggð er þema sem getur náð yfir allt að sex vikna vinnu með nemendum. Verkefnið sparar kennurum gríðarlega mikinn undirbúningstíma! 
  • Námsgreinar: Íslenska, erlend tungumál, listgreinar, lykilhæfni, náttúrugreinar, samfélagsgreinar, upplýsinga- og tæknimennt. 
  • Námsmarkmið og viðmið um árangur: Öll verkefni þemans eru tengd hæfniviðmiðum aðalnámskrár. Hverju verkefni fylgja námsmarkmið og ítarleg viðmið um árangur fyrir nemendur. 
  • Grunnþættir: Verkefnaferlið er unnið út frá grunnþættinum lýðræði og mannréttindi en verkefnin uppfylla einnig markmið grunnþáttanna sjálfbærni, sköpunar og læsis.

Markmið námskeiðsins 

Markmið námskeiðsins byggja á reglugerð um hæfniramma með viðmiðum fyrir almenna og sérhæfða hæfni kennara og skólastjórnenda við leik-, grunn- og framhaldsskóla. 

  • Festa í sessi starfshætti leiðsagnarnáms og samþættingu námsgreina.
  • Efla færni kennara til að mæta betur námslegum þörfum ólíkra nemenda. 
  • Efla færni til að nýta árangursríkar aðferðir sem hafa jákvæð áhrif á hegðun, líðan og félagsfærni barna og stuðla að farsæld þeirra. 
  • Efla færni í að aðlaga inntak náms- og greinasviða í samræmi við aldur, þroska og þarfir nemenda. 
  • Efla færni til að nýta stafræna tækni og lykilhæfni í kennslu. 
  • Efla færni til að setja viðeigandi námsmarkmið með nemendum og styðja við framfarir þeirra í námi. 
  • Efla færni til að nýta gagnreyndar aðferðir við kennslu. 
  • Efla færni kennara til að nýta sveigjanlega náms- og kennsluhætti sem örva þroska og efla áhuga nemenda.
  • Efla færni kennara til að nýta árangursríkar aðferðir sem stuðla að lýðræðislegri þátttöku allra nemenda og auka áhrif þeirra á eigið nám. 

Styrkur

  • Kennarar geta sótt um styrk til Kí 
  • Kennarar geta skráð námskeiðið sem persónulega endurmenntun og fengið sérstakt viðurkenningarskjal með staðfestingu á hæfni 

Kennarar á námskeiðum Ásgarðs   

Anna María Þorkelsdóttir - Kennsluráðgjafi, námsgagnahöfnundur og sérfræðingur í leiðsagnarnámi og upplýsingatækni 

Kristrún Lind Birgisdóttir - Kennsluráðgjafi, námsgagnahöfundur og framkvæmdastjóri

Tinna Björk Pálsdóttir - Kennsluráðgjafi, námsgagnahöfnundur og sérfræðingur í leiðsagnarnámi og upplýsingatækni

--------------

**Þetta námskeið er einnig fáanlegt sem námskeið fyrir starfsdaga. Hentar vel sem hálfur eða heill dagur fer eftir stærð skóla. Vinsamlegast hafið samband við Önnu Maríu annamaria@ais.is eða Kristrúnu kristrun@ais.is 

Skoða allar upplýsingar