Sleppa vöruupplýsingum
1 af 1

Betri heimur. Fáanlegt sem starfsdagur.

Betri heimur. Fáanlegt sem starfsdagur.

Verð 175.300 kr.
Verð Útsöluverð 175.300 kr.
Útsala Uppselt
Virðisaukaskattur innifalinn ef við á Sendingarkostnaður reiknast út frá magni ef við á

Viltu efla þig í starfi, fá innblástur og hagnýtar hugmyndir sem hægt er að nota strax í kennslu? Viltu styrkja þekkingu þína á leiðsagnarnámi og samþættingu verkefna? Viltu slá tvær flugur í einu höggi með því að koma á námskeið þar sem þú undirbýrð kennsluna í leiðinni? Þá eru námskeiðin okkar fyrir þig.

Á námskeiðum Ásgarðs fá kennarar tækifæri til að kynna sér gæðarýnd þemaverkefni og verkefnapakka sem hafa lykilhæfni að leiðarljósi. Hvert skref er vandlega skipulagt og hvert viðfangsefni útskýrt ítarlega með skýrum námsmarkmiðum, viðmiðum um árangur og hugmyndum að bókum og kennslutækjum. Með námskeiðunum spara kennarar sér gríðarlega mikinn undirbúningstíma og samþætta starfsþróun og undirbúning kennslu. Kennarar læra jafnframt að gæðarýna eigin verkefni og aðlaga samþættingarverkefni að aldri nemenda og aðstæðum í hverjum skóla. 

Fyrirkomulag 

  • Námskeiðin fara fram á netinu í tvo klukkutíma í senn. 
    • Í fyrri hlutanum er eðli og innihald þemapakkanna kynnt, ásamt leiðum til að laga þá að hverjum skóla eða nemendahópi fyrir sig. 
    • Í seinni hlutanum er fyrirlestur um gæðarýni og leitast við að leysa vandamál sem upp hafa komið í kennslunni og miðla góðum hugmyndum áframi. 
  • Ítarlegur þemaverkefnipakki fyrir yngsta, mið og unglingastig fylgja með.  Breytanleg skjöl með ítarlegum kennsluáætlunum sem auðvelda kennurum að laga kennsluna að þörfum og aðstæðum hverju sinni. 

Dagsetningar

22. janúar. Kl. 14.00 til 16.00

19. febrúar. Kl. 14.00 til 16.00

Á þessu hagnýta námskeiði læra kennarar að nota þemaverkefnið Betri heim. Betri heimur er mjög umfangsmikið verkefni sem hægt er að skipta upp í fjögur aðskilin tímabil eða verkefni. Það er einnig hægt að skipta nemendum upp í fjóra hópa sem velja sér verkefni, eftir að allir hópurinn hefur tileinkað sér helstu hugtökin. 

Fyrsti hlutinn heitir Heimurinn batnandi fer þar sem fjallað er um fólk á flótta. Nemendur kynna sér aðstæður fólks á flótta og setja sig í spor þeirra. Síðan íhuga þeir hvernig gott sé að taka á móti fólki sem flýr til Íslands og setja fram tillögur til úrbóta. Annar hluti nefnist Betra umhverfi. Þar læra nemendur um sjálfbærni og velta fyrir sér eigin áhrifum á umhverfið. Nemendur safna plasti að heiman í heila viku og búa til endurvinnslulistaverk. Þriðji hlutinn nefnist Betri heimur fyrir dýrin okkar. Þar útbúa nemendur hýbýlakassa fyrir dýrin sín og læra meðal annars um útrýmingarhættu. Í fjórða hlutanum sem nefnist Betra andrúmsloft fyrir alla, búa nemendur til koltvísýring, velta fyrir sér mengun og leiðum til að draga úr henni.

Í námsferlinu þjálfast nemendur í sjálfstæðum vinnubrögðum og hópvinnu, þeir læra að tjá skoðanir sínar á uppbyggilegan hátt og ígrunda eigin vinnu. Betri heimur er fjölbreytt og skemmtilegt samþættingarverkefni þar sem nemendur læra flókna hluti og hugtök í gegnum verkefni sem byggja á sköpun. Í þessu þema er hægt að fara mjög fjölbreyttar leiðir við að útfærslu verkefna, ekki síst með eldri nemendum, svo sem að vinna með Minecraft, 3D prentun og sýndarveruleika. 

Betri heimur er samþætt heildstætt þemaverkefni sem getur verið viðfangsefni til langs tíma, jafnvel fyrir heilan skólavetur (t.d. 2 tímar á viku í nýsköpunar- og frumkvöðlamennt). Þemað má einnig vinna þéttar yfir styttri tíma. 

  • Verkefnin eru tuttugu og sjö þar af er eitt sem inniheldur valverkefni og eitt STEAM verkefni.
  • Hæfniviðmiðin sem liggja að baki eru fimmtíu og átta.
  • Tími: Betri heimur er spennandi þemaverkefni sem getur náð yfir heilan vetur af vinnu og sparar kennurum gríðarlega mikinn undirbúningstíma! 
  • Námsgreinar: Íslenska, list- og verkgreinar, lykilhæfni, náttúrugreinar, enska, samfélagsgreinar, stærðfræði og upplýsinga- og tæknimennt. STEM er bæði samþætt inn í námsferlið og svo fylgja viðbótarverkefni með. 
  • Námsmarkmið og viðmið um árangur: Öll verkefni þemans eru tengd hæfniviðmiðum aðalnámskrár. Hverju verkefni fylgja námsmarkmið og ítarleg viðmið um árangur fyrir nemendur. 
  • Grunnþættir: Verkefnaferlið er unnið út frá grunnþættinum sjálfbærni en verkefnin uppfylla einnig markmið allra grunnþátta aðalnámskrár.

Markmið námskeiðsins 

Markmið námskeiðsins byggja á reglugerð um hæfniramma með viðmiðum fyrir almenna og sérhæfða hæfni kennara og skólastjórnenda við leik-, grunn- og framhaldsskóla. 

  • Festa í sessi starfshætti leiðsagnarnáms og samþættingu námsgreina.
  • Efla færni kennara til að mæta betur námslegum þörfum ólíkra nemenda. 
  • Efla færni til að nýta árangursríkar aðferðir sem hafa jákvæð áhrif á hegðun, líðan og félagsfærni barna og stuðla að farsæld þeirra. 
  • Efla færni í að aðlaga inntak náms- og greinasviða í samræmi við aldur, þroska og þarfir nemenda. 
  • Efla færni til að nýta stafræna tækni og lykilhæfni í kennslu. 
  • Efla færni til að setja viðeigandi námsmarkmið með nemendum og styðja við framfarir þeirra í námi. 
  • Efla færni til að nýta gagnreyndar aðferðir við kennslu. 
  • Efla færni kennara til að nýta sveigjanlega náms- og kennsluhætti sem örva þroska og efla áhuga nemenda.
  • Efla færni kennara til að nýta árangursríkar aðferðir sem stuðla að lýðræðislegri þátttöku allra nemenda og auka áhrif þeirra á eigið nám. 

Styrkur

  • Kennarar geta sótt um styrk til Kí 
  • Kennarar geta skráð námskeiðið sem persónulega endurmenntun og fengið sérstakt viðurkenningarskjal með staðfestingu á hæfni 

Kennarar á námskeiðum Ásgarðs   

Anna María Þorkelsdóttir - Kennsluráðgjafi, námsgagnahöfnundur og sérfræðingur í leiðsagnarnámi og upplýsingatækni 

Kristrún Lind Birgisdóttir - Kennsluráðgjafi, námsgagnahöfundur og framkvæmdastjóri

Tinna Björk Pálsdóttir - Kennsluráðgjafi, námsgagnahöfnundur og sérfræðingur í leiðsagnarnámi og upplýsingatækni

--------------

**Þetta námskeið er einnig fáanlegt sem námskeið fyrir starfsdaga. Hentar vel sem hálfur eða heill dagur fer eftir stærð skóla. Vinsamlegast hafið samband við Önnu Maríu annamaria@ais.is eða Kristrúnu kristrun@ais.is 

Skoða allar upplýsingar