30 námsveggir - Hagnýtt námskeið sem hentar meðal annars vel á starfsdegi kennara (hálfur dagur).
30 námsveggir - Hagnýtt námskeið sem hentar meðal annars vel á starfsdegi kennara (hálfur dagur).
Afhending ekki fyrir hendi
Námsveggir eru mikilvægar námsstoðir. Tilgangur þeirra er að auka sjálfstæði nemenda og ramma inn nám og kennslu. Á námskeiðinu er sérstaklega farið yfir hvernig nemendur geta tekið þátt í að byggja upp námsveggi og stýra námi sínu.
Námsveggir varða leiðina að skýrum námsmarkmiðum og hjálpa bæði kennurum og nemendum að efla leiðsagnarnám í kennslustofunni á skemmtilegan og sjónrænan hátt. Á námskeiðinu er sérstaklega farið yfir mjög einfalda námsveggi sem gott er að byrja á, út frá viðfangsefnum sem kennarar þekkja og eiga auðvelt með að byggja ofan á.
Á námskeiðinu eru gefin dæmi um 30 tegundir námsveggja sem kennarar geta nýtt í starfi sínu, hvort sem um er að ræða samþættar námsgreinar, list- og verkgreinar, íþróttir eða hvaða nám sem er á öllum skólastigum.
Dæmin sem fjallað er um á námskeiðinu miðast aðallega við leiðsagnarnám. Námsveggirnir skiptast í tvö meginþemu, þ.e. námsveggi sem vaxa með nemendum og námsveggi sem stýra námi. Einnig verður farið yfir algeng mistök við notkun námsveggja og hvernig bæta má námsveggi sem hafa staðnað.
Á námskeiðinu útbúa kennarar sína eigin námsveggi og deila þeim með öðrum kennurum á námskeiðinu. Þátttakendur rýna í og bæta námsveggina sína saman. Á seinni hluta námskeiðsins segja kennarar frá því hvernig gekk að nýta námsveggina í kennslu og deila reynslu sinni með öðrum. Þannig er afrakstur námskeiðsins námsveggir sem nýtast beint í skólastarfinu.
Á námskeiðinu er stuðlað að því að efla gæði skólastarfsins. Helstu gæðaviðmið MMS um gæðastarf í grunnskólum sem tengjast viðfangsefninu eru:
- Viðmið um árangur sem tengjast námsgreinum og lykilhæfni eru skráð og öllum aðgengileg.
- Nemendur gera sér grein fyrir þeim hæfniviðmiðum og leiðum sem þeir þurfa að vinna að til að ná markmiðum sínum og árangri í námsverkefnum.
- Nemendum er gerð grein fyrir markmiðum kennslustunda og verkefna.
- Í námsumhverfi nemenda eru sjónrænar stoðir nýttar til stuðnings við nám, t.d. námsveggir, myndrænt dagskipulag, tölur, stafir og leiðbeiningar.
- Verk nemenda eru sýnileg og eru hluti af menningu grunnskólans.
- Nemendur gera sér grein fyrir þeim hæfniviðmiðum og leiðum sem þeir þurfa að vinna að til að ná markmiðum sínum og árangri í námsverkefnum.
- Nemendur þjálfast í að meta eigið nám, vinnu og námsframvindu.
Styrkur
- Kennarar geta sótt um styrk til KÍ.
- Kennarar geta skráð námskeiðið sem persónulega endurmenntun og fengið sérstakt viðurkenningarskjal með staðfestingu á hæfni.
Kennarar á námskeiðum Ásgarðs
Anna María Þorkelsdóttir - Kennsluráðgjafi, námsgagnahöfundur og sérfræðingur í leiðsagnarnámi og upplýsingatækni.
Kristrún Lind Birgisdóttir - Kennsluráðgjafi, námsgagnahöfundur og framkvæmdastjóri.
Tinna Björk Pálsdóttir - Kennsluráðgjafi, námsgagnahöfundur og sérfræðingur í leiðsagnarnámi og upplýsingatækni.
--------------
**Þetta námskeið getur verið net- eða staðnámskeið og er einnig fáanlegt sem heils dags námskeið fyrir starfsdaga. Vinsamlegast hafið samband við Önnu Maríu annamaria@ais.is eða Kristrúnu kristrun@ais.is
Deila
