Sleppa vöruupplýsingum
1 af 1

Hrekkjavaka - Kennsluleiðbeiningar fyrir unglingastig

Hrekkjavaka - Kennsluleiðbeiningar fyrir unglingastig

Verð 1.700 kr.
Verð Útsöluverð 1.700 kr.
Útsala Uppselt
Virðisaukaskattur innifalinn ef við á Sendingarkostnaður reiknast út frá magni ef við á

Áætluð lengd: 10-16 kennslustundir.

Grunnþættir: Jafnrétti

Námsgreinar: Enska, danska, íslenska, list- og verkgreinar, lykilhæfni, samfélagsfræði, upplýsinga- og tæknimennt og stærðfræði.

Unglingastig: Þetta verkefni er skrifað fyrir unglingastig. Einnig er til svipað verkefni fyrir mið- og yngsta stig. Þetta skjal er breytanlegt og kennarar eru hvattir til að aðlaga framsetningu eftir því sem við á.

Námsmarkmið: Meginmarkmið þessa þema eru að þjálfa nemendur í sjálfstæðum og skapandi vinnubrögðum, kynna þeim sögu hrekkjavökunnar, efla tungumálakunnáttu þeirra, styrkja sjálfstraust og bæta bekkjaranda og samheldni.

Í þessu þema fást nemendur við drauga, hrylling og fleira hræðilega skemmtilegt sem tengist hrekkjavökunni. Nemendur vinna meðal annars með texta á ensku, dönsku og íslensku, skrifa leikrit og setja upp skemmtun. Nemendur halda utan um vinnu sína í vinnuskjali sem getur verið á pappír eða rafrænt. Námsefnið er sett fram sem efni eða amboð. Nemendur geta líka valið sér sitt eigið efni eða ítarefni. Allt þemað er óháð ákveðnu námsefni. Í þessu verkefni er gert ráð fyrir að nemendur noti aðeins endurnýtt efni í leikmuni, skreytingar og búninga. Gott er að kennarar taki til það námsefni sem til er í skólanum og leggi fram, svo það sé aðgengilegt nemendum í kennslustofunni.

Skoða allar upplýsingar