Sleppa vöruupplýsingum
1 af 1

Hver er ég - Kennsluleiðbeiningar fyrir miðstig

Hver er ég - Kennsluleiðbeiningar fyrir miðstig

Verð 1.700 kr.
Verð Útsöluverð 1.700 kr.
Útsala Uppselt
Virðisaukaskattur innifalinn ef við á Sendingarkostnaður reiknast út frá magni ef við á

Heilbrigði og velferð - Miðstig

Áætluð lengd: 10 til 20 kennslustundir 

Námsgreinar: Lykilhæfni, íslenska, samfélagsfræði, upplýsinga- og tæknimennt og list- og verkgreinar 

Miðstig: Þetta þemaverkefni er skrifað fyrir miðstig. Verkefnið má þó auðveldlega vinna með yngri nemendum, með því að uppfæra hæfniviðmiðin og aðlaga viðfangsefnin. Þetta skjal er breytanlegt og kennarar eru hvattir til að aðlaga framsetningu eftir því sem við á.

Námsmarkmið: Meginmarkmið þessa þema er að hver nemandi undirbúi nemendastýrt viðtal við foreldra eða forsjárfólk, með því að búa til bók um sjálfan sig. Í bókinni skoðar nemandinn meðal annars sérkenni sín og styrkleika og setur sér markmið. Bókin myndar grunn að fyrsta nemendastýrða viðtalinu.

Hver er ég? Hvað finnst mér mikilvægt? Hverju stefni ég að? Í þessu þema líta nemendur inn á við og velta fyrir sér stórum spurningum um sig, námið, markmið og fyrirmyndir. Þemað er jafnframt ritunarverkefni þar sem nemendur skrifa heila bók um sig. Nemendur halda utan um vinnu sína í vinnuskjali sem getur verið á pappír eða rafrænt. Námsefnið er sett fram sem efni eða amboð. Nemendur geta líka valið sér sitt eigið efni eða ítarefni. Allt þemað er óháð ákveðnu námsefni. Gott er að kennarar taki til það námsefni sem til er í skólanum og leggi fram, svo það sé aðgengilegt nemendum í kennslustofunni.

Skoða allar upplýsingar