Sleppa vöruupplýsingum
1 af 1

Tækni - Kennsluleiðbeiningar fyrir yngsta stig

Tækni - Kennsluleiðbeiningar fyrir yngsta stig

Verð 1.700 kr.
Verð Útsöluverð 1.700 kr.
Útsala Uppselt
Virðisaukaskattur innifalinn ef við á Sendingarkostnaður reiknast út frá magni ef við á

Verkefnið er 27 námseiningar í sjö hlutum sem hægt er að taka fyrir í einu samfelldu þema eða skipta í fjögur samfelld þemu.

Fyrsti hlutinn er kveikja og forþekkingarvinna. Þá tekur við annar hluti „Tækni í umhverfi okkar“ þar sem fjallað er um tækni í okkar nánasta umhverfi. Nemendur skoða tæknina í kringum sig, útbúa líkan af tæki sem þeim finnst mikilvægt og velta fyrir sér áhrifum tækninnar á sitt nánasta umhverfi. „Samgöngur og tækni“ er þriðji hlutinn, þar sem nemendur skoða þróun samgangna út frá bókinni Around the World in 80 days og læra um þróun samgangna á ensku. Í fjórða hlutanum „Híbýli og tækni“ gera nemendur meðal annars líkan af draumaherberginu sínu og tengja saman stærðfræði og líkanagerð. Þeir íhuga framtíðina og hvernig framtíðartækni getur birst á heimilum. Í fimmta hlutanum „Heilsa og tækni“ vinna nemendur fyrst með bókina Vélmennið í grasinu. (Það er gott að byrja að lesa bókina strax í upphafi þemans, þannig að lestrinum sé lokið þegar að þessum hluta kemur). Næst búa nemendur til vélmenni og hreyfibraut. Að lokum er sjötti og síðasti hlutinn tvö STEAM verkefni sem hægt er að grípa í eða vinna síðast.

  • Áætluð lengd: Heildartímafjöldi getur verið til dæmis 2x2 kennslustundir á viku í eina önn. Hægt er að láta valverkefnin taka smám saman við, þegar hóparnir ljúka sínum verkefnum. Það er auðvelt að fara dýpra í verkefni og nota meiri tíma í hvert þeirra. Þannig má til dæmis gefa þemaverkefninu fasta tíma í töflu nemenda yfir heilt skólaár. Sumar námseiningar má gjarna vinna með í nokkrar kennslustundir. Mikilvægt er að kennarar lesi þemaverkefnið vel í gegn og geri þær breytingar sem henta hverju sinni. Það er gert ráð fyrir að námslotan sé samfelld en þó er auðvelt að taka einstök verkefni út og vinna með þau sér.
  • Námsgreinar: Íslenska, list- og verkgreinar, lykilhæfni, náttúrugreinar, enska, samfélagsgreinar, stærðfræði og UT. STEM vinna er samþætt inn í námsferlið og svo fylgja viðbótarverkefni með í lokin.
  • Yngsta stig: Þetta þemaverkefni er skrifað fyrir yngsta stig. Verkefnið má þó auðveldlega vinna með eldri nemendum, með því að uppfæra hæfniviðmiðin og aðlaga viðfangsefnin. Megináhersla þessa verkefnis er þjálfun í frumkvöðla- og nýsköpunarhugsun.
Skoða allar upplýsingar