Ritunarramminn - Hagnýtar leiðir til að innleiða starfshætti sem styðja við Ritunarramma MMS (hálfur dagur).
Ritunarramminn - Hagnýtar leiðir til að innleiða starfshætti sem styðja við Ritunarramma MMS (hálfur dagur).
Afhending ekki fyrir hendi
-
- Heiti: Ritunarramminn - Hagnýtar leiðir til að innleiða starfshætti sem styðja við Ritunarramma MMS
- Lengd: Hálfur dagur
- Staðsetning: Fjarnámskeið eða staðnámskeið.
Námskeiðinu fylgja ítarlegar kennsluáætlanir sem kennarar geta nýtt sér strax að námskeiði loknu.
Markmið námskeiðsins/starfsdags:
- Meginmarkmiðið er að fara yfir hagnýtar leiðir til þess að kenna mismunandi textategundir, það er sögugerð, gerð fræðitexta og rökfærslutexta þar sem áhersla er lögð á skapandi, nemendastýrð og skemmtileg ritunarverkefni fyrir nemendur.
- Ritunarramminn og leiðsagnarnám, tengls og hagnýtar leiðir.
- Námskeiðið er sniðið að þörfum kennara á yngsta-, mið- og unglingastigi og hentar heilum skólum eða stigum innan skóla.
Inntak og fyrirkomulag: Námskeiðið hefst á fræðsluerindi þar sem kynntar verða áherslur námskeiðsins, nýjustu kröfur Aðalnámskrár, OECD og Unesco og hagnýt nálgun á innleiðingu þeirra í skólastarfi, með sérstakri áherslu á gæðastarf.
Eftir fræðsluerindið er hópnum skipt svo þátttakendur geti tengt efnið við eigið starfsumhverfi, greint styrkleika í starfi sínu og fundið tækifæri til umbóta. Áhersla er lögð á að kennarar geti sett sér markmið um að innleiða ákveðna þætti og skapað lærdómssamfélag um innleiðinguna innan skólans.
Styrkur
- Kennarar geta sótt um styrk til KÍ.
- Kennarar geta skráð námskeiðið sem persónulega endurmenntun og fengið sérstakt viðurkenningarskjal með staðfestingu á hæfni.
Kennarar á námskeiðum Ásgarðs
Anna María Þorkelsdóttir - Kennsluráðgjafi, námsgagnahöfundur og sérfræðingur í leiðsagnarnámi og upplýsingatækni
Kristrún Lind Birgisdóttir - Kennsluráðgjafi, námsgagnahöfundur og framkvæmdastjóri
Tinna Björk Pálsdóttir - Kennsluráðgjafi, námsgagnahöfundur og sérfræðingur í leiðsagnarnámi og upplýsingatækni
Ritunarrammi MMS: https://island.is/handbaekur/ritunarramminn-handbok-um-notkun
Deila
