Sleppa vöruupplýsingum
1 af 1

Satt eða logið. Fáanlegt sem starfsdagur.

Satt eða logið. Fáanlegt sem starfsdagur.

Verð 175.300 kr.
Verð Útsöluverð 175.300 kr.
Útsala Uppselt
Virðisaukaskattur innifalinn ef við á Sendingarkostnaður reiknast út frá magni ef við á

Viltu efla þig í starfi, fá innblástur og hagnýtar hugmyndir sem hægt er að nota strax í kennslu? Viltu styrkja þekkingu þína á leiðsagnarnámi og samþættingu verkefna? Viltu slá tvær flugur í einu höggi með því að koma á námskeið þar sem þú undirbýrð kennsluna í leiðinni? Þá eru námskeiðin okkar fyrir þig.

Á námskeiðum Ásgarðs fá kennarar tækifæri til að kynna sér gæðarýnd þemaverkefni og verkefnapakka sem hafa lykilhæfni að leiðarljósi. Hvert skref er vandlega skipulagt og hvert viðfangsefni útskýrt ítarlega með skýrum námsmarkmiðum, viðmiðum um árangur og hugmyndum að bókum og kennslutækjum. Með námskeiðunum spara kennarar sér gríðarlega mikinn undirbúningstíma og samþætta starfsþróun og undirbúning kennslu. Kennarar læra jafnframt að gæðarýna eigin verkefni og aðlaga samþættingarverkefni að aldri nemenda og aðstæðum í hverjum skóla. 

Fyrirkomulag 

  • Námskeiðin fara fram á netinu og standa í tvo klukkutíma í senn - eða fara fram á einum heilum eða tveimur hálfum starfsdögum
    • Í fyrri hlutanum er eðli og innihald þemapakkanna kynnt, ásamt leiðum til að laga þá að hverjum skóla eða nemendahópi fyrir sig. 
    • Í seinni hlutanum er fyrirlestur um gæðarýni og leitast við að leysa vandamál sem upp hafa komið í kennslunni og miðla góðum hugmyndum áframi. 
  • Ítarlegur þemaverkefnipakki fyrir yngsta, mið og unglingastig fylgja með.  Breytanleg skjöl með ítarlegum kennsluáætlunum sem auðvelda kennurum að laga kennsluna að þörfum og aðstæðum hverju sinni. 

Á þessu hagnýta námskeiði læra kennarar að nota þemaverkefnið Satt eða logið. Námsferlið byrjar á því að nemendur læra um ólíka hagsmunahópa, velja sér hóp eða búa til sinn eigin. Nemendur læra að þekkja og skilja birtingarmyndir áróðurs, æsifrétta og falsfrétta, læra um smellihrelli, myndlæsi og áreiðanleika vefmiðla. Nemendur kynna sér hvernig óprúttnir aðilar nota netið til að vinna gegn hagsmunum annarra, í pólitískum tilgangi, ábataskyni eða af öðrum ástæðum. Í síðari hluta námsferilsins reyna nemendur að vernda hagsmunahópinn sinn með því að útbúa fræðsluvefsíðu sem fjallar um netöryggi, ábyrga netnotkun, áróður, falsfréttir og fleira. 

Verkefni þemans reyna meðal annars á gagnrýnið hugarfar og miðlalæsi. Nemendur þjálfast í að greina upplýsingar og skoða hegðun fólks. Þemaverkefnið er spennandi og skemmtileg leið til að efla stafræna borgaravitund barna og unglinga.

Satt eða logið er samþætt heildstætt þemaverkefni sem oft er unnið á 4 vikum. 

  • Verkefnin eru fimmtán.
  • Hæfniviðmiðin sem liggja að baki eru þrjátíu og fjögur
  • Tími: Satt eða logið er þemaverkefni sem hentar í um fjögurra vikna vinnu með nemendum og sparar kennurum gríðarlega mikinn undirbúningstíma! 
  • Námsgreinar: Íslenska, upplýsinga- og tæknimennt, samfélagsfræði, lykilhæfni, stærðfræði, list-og verkgreinar.
  • Námsmarkmið og viðmið um árangur: Öll verkefni þemans eru tengd hæfniviðmiðum aðalnámskrár. Hverju verkefni fylgja námsmarkmið og ítarleg viðmið um árangur fyrir nemendur. 
  • Grunnþættir: Verkefnaferlið er unnið út frá grunnþættinum læsi en verkefnin uppfylla einnig markmið grunnþáttarins sköpunar.

Markmið námskeiðsins 

Markmið námskeiðsins byggja á reglugerð um hæfniramma með viðmiðum fyrir almenna og sérhæfða hæfni kennara og skólastjórnenda við leik-, grunn- og framhaldsskóla. 

  • Festa í sessi starfshætti leiðsagnarnáms og samþættingu námsgreina.
  • Efla færni kennara til að mæta betur námslegum þörfum ólíkra nemenda. 
  • Efla færni til að nýta árangursríkar aðferðir sem hafa jákvæð áhrif á hegðun, líðan og félagsfærni barna og stuðla að farsæld þeirra. 
  • Efla færni í að aðlaga inntak náms- og greinasviða í samræmi við aldur, þroska og þarfir nemenda. 
  • Efla færni til að nýta stafræna tækni og lykilhæfni í kennslu. 
  • Efla færni til að setja viðeigandi námsmarkmið með nemendum og styðja við framfarir þeirra í námi. 
  • Efla færni til að nýta gagnreyndar aðferðir við kennslu. 
  • Efla færni kennara til að nýta sveigjanlega náms- og kennsluhætti sem örva þroska og efla áhuga nemenda.
  • Efla færni kennara til að nýta árangursríkar aðferðir sem stuðla að lýðræðislegri þátttöku allra nemenda og auka áhrif þeirra á eigið nám. 

Styrkur

  • Kennarar geta sótt um styrk til Kí 
  • Kennarar geta skráð námskeiðið sem persónulega endurmenntun og fengið sérstakt viðurkenningarskjal með staðfestingu á hæfni 

Kennarar á námskeiðum Ásgarðs   

Anna María Þorkelsdóttir - Kennsluráðgjafi, námsgagnahöfnundur og sérfræðingur í leiðsagnarnámi og upplýsingatækni 

Kristrún Lind Birgisdóttir - Kennsluráðgjafi, námsgagnahöfundur og framkvæmdastjóri

Tinna Björk Pálsdóttir - Kennsluráðgjafi, námsgagnahöfnundur og sérfræðingur í leiðsagnarnámi og upplýsingatækni

--------------

**Þetta námskeið er einnig fáanlegt sem námskeið fyrir starfsdaga. Hentar vel sem hálfur eða heill dagur fer eftir stærð skóla. Vinsamlegast hafið samband við Önnu Maríu annamaria@ais.is eða Kristrúnu kristrun@ais.is 

Skoða allar upplýsingar