Sleppa vöruupplýsingum
1 af 1

Sjálfbært samfélag. Fáanlegt sem starfsdagur.

Sjálfbært samfélag. Fáanlegt sem starfsdagur.

Verð 175.300 kr.
Verð Útsöluverð 175.300 kr.
Útsala Uppselt
Virðisaukaskattur innifalinn ef við á Sendingarkostnaður reiknast út frá magni ef við á

Viltu efla þig í starfi, fá innblástur og hagnýtar hugmyndir sem hægt er að nota strax í kennslu? Viltu styrkja þekkingu þína á leiðsagnarnámi og samþættingu verkefna? Viltu slá tvær flugur í einu höggi með því að koma á námskeið þar sem þú undirbýrð kennsluna í leiðinni? Þá eru námskeiðin okkar fyrir þig.

Á námskeiðum Ásgarðs fá kennarar tækifæri til að kynna sér gæðarýnd þemaverkefni og verkefnapakka sem hafa lykilhæfni að leiðarljósi. Hvert skref er vandlega skipulagt og hvert viðfangsefni útskýrt ítarlega með skýrum námsmarkmiðum, viðmiðum um árangur og hugmyndum að bókum og kennslutækjum. Með námskeiðunum spara kennarar sér gríðarlega mikinn undirbúningstíma og samþætta starfsþróun og undirbúning kennslu. Kennarar læra jafnframt að gæðarýna eigin verkefni og aðlaga samþættingarverkefni að aldri nemenda og aðstæðum í hverjum skóla. 

Fyrirkomulag 

  • Námskeiðin fara fram á netinu í tvo klukkutíma í senn. 
    • Í fyrri hlutanum er eðli og innihald þemapakkanna kynnt, ásamt leiðum til að laga þá að hverjum skóla eða nemendahópi fyrir sig. 
    • Í seinni hlutanum er fyrirlestur um gæðarýni og leitast við að leysa vandamál sem upp hafa komið í kennslunni og miðla góðum hugmyndum áframi. 
  • Ítarlegur þemaverkefnipakki fyrir yngsta, mið og unglingastig fylgja með.  Breytanleg skjöl með ítarlegum kennsluáætlunum sem auðvelda kennurum að laga kennsluna að þörfum og aðstæðum hverju sinni. 

Dagsetningar

26. janúar. Kl. 14.00 til 16.00

23. febrúar. Kl. 14.00 til 16.00

Á þessu hagnýta námskeiði læra kennarar að nota þemaverkefnið Sjálfbært samfélag. Kjarni þemans er grunnþátturinn sjálfbærni ásamt tengdum hugtökum. Í þemaverkefninu læra nemendur hvað felst í því að búa í sjálfbæru samfélagi og skoða hvort við þurfum að breyta hegðun okkar til að ná markmiðum sjálfbærni. Nemendur kynnast menningarheimum þar sem fólk býr við allt aðrar áskoranir en við gerum hérlendis. Mikið er lagt upp úr samvinnu og samstarfi nemenda og vinnu með lykilhæfni. Markmiðið er að nýta samvinnuna til að styrkja félagsfærni, efla samkennd og auka virðingu fyrir samnemendum. 

Fyrsti hlutinn þemans er kveikja og forþekkingarvinna. Þá tekur við viðamikill annar hluti Hreint vatn, þar sem nemendur læra um hringrás vatns, rýna í eigin vatnsnotkun og finna leiðir til þess að hreinsa vatn. Nemendur kynna sér aðbúnað fólks sem býr við vatnsskort, skapa fjölskyldu og gefa henni líf með því að setja upp brúðuleikhús. Í þriðja hlutanum Sjálfbærni Íslands – matur velta nemendur fyrir sér hvort Ísland sé raunverulega sjálfbært um mat, finna leiðir til þess að nýta mat betur og matreiða úr hráefni sem annars hefði farið í ruslið. Fjórði hlutinn nefnist Kolefnisfótspor. Þar kynna nemendur sér kolefnishlutleysi og reikna út sín eigin kolefnisfótspor. Í fimmta hlutanum Orku læra nemendur um orku, auðlindir og orkuskipti ásamt því að útbúa sinn eigin orkugjafa! Sjötti hlutinn Sjálfbært þjóðfélag er stærsta verkefnið í þessu þema. Nemendur útbúa stórt líkan af sjálfbæru samfélagi og nota til þess fjölbreyttan efnivið. Þegar líkanið er tilbúið bjóða nemendur forráðamönnum í heimsókn. Í síðasta hlutanum eru nokkur val- og aukaverkefni sem hægt er að grípa til eftir þörfum. Í þessu þema er hægt að fara mjög fjölbreyttar leiðir við að útfæra verkefni, ekki síst með eldri nemendum, svo sem að vinna með Minecraft, 3D prentun og sýndarveruleika. 

Sjálfbært samfélag er samþætt heildstætt þemaverkefni sem er hugsað sem verkefni fyrir heilan skólavetur (t.d. 2 tímar á viku í nýsköpunar- og frumkvöðlamennt) eða þéttar yfir styttri tíma. Þemaverkefninu er skipt upp í nokkra kafla sem geta staðið einir. 

  • Verkefnin eru þrjátíu og níu þar af er sjö valverkefni og eitt STEAM verkefni. STEM verkefni eru einnig samþætt inn í námsferlið. 
  • Hæfniviðmiðin sem liggja að baki eru áttatíu og átta.
  • Tími: Sjálfbært samfélag er þemaverkefni sem getur náð yfir heilan vetur af vinnu sé það tekið sem ein heild með nemendum. Þemað sparar kennurum gríðarlega mikinn undirbúningstíma! 
  • Námsgreinar: Íslenska, list- og verkgreinar, lykilhæfni, náttúrugreinar, enska, samfélagsgreinar, stærðfræði og upplýsinga- og tæknimennt. STEM er bæði samþætt inn í námsferlið og svo fylgja viðbótarverkefni með í lokin. 
  • Námsmarkmið og viðmið um árangur:Öll verkefni þemans eru tengd hæfniviðmiðum aðalnámskrár. Hverju verkefni fylgja námsmarkmið og ítarleg viðmið um árangur fyrir nemendur. 
  • Grunnþættir: Verkefnaferlið er unnið út frá grunnþættinum sjálfbærni en verkefnin uppfylla einnig markmið allra grunnþátta aðalnámskrár.

Markmið námskeiðsins 

Markmið námskeiðsins byggja á reglugerð um hæfniramma með viðmiðum fyrir almenna og sérhæfða hæfni kennara og skólastjórnenda við leik-, grunn- og framhaldsskóla. 

  • Festa í sessi starfshætti leiðsagnarnáms og samþættingu námsgreina.
  • Efla færni kennara til að mæta betur námslegum þörfum ólíkra nemenda. 
  • Efla færni til að nýta árangursríkar aðferðir sem hafa jákvæð áhrif á hegðun, líðan og félagsfærni barna og stuðla að farsæld þeirra. 
  • Efla færni í að aðlaga inntak náms- og greinasviða í samræmi við aldur, þroska og þarfir nemenda. 
  • Efla færni til að nýta stafræna tækni og lykilhæfni í kennslu. 
  • Efla færni til að setja viðeigandi námsmarkmið með nemendum og styðja við framfarir þeirra í námi. 
  • Efla færni til að nýta gagnreyndar aðferðir við kennslu. 
  • Efla færni kennara til að nýta sveigjanlega náms- og kennsluhætti sem örva þroska og efla áhuga nemenda.
  • Efla færni kennara til að nýta árangursríkar aðferðir sem stuðla að lýðræðislegri þátttöku allra nemenda og auka áhrif þeirra á eigið nám. 

Styrkur

  • Kennarar geta sótt um styrk til Kí 
  • Kennarar geta skráð námskeiðið sem persónulega endurmenntun og fengið sérstakt viðurkenningarskjal með staðfestingu á hæfni 

Kennarar á námskeiðum Ásgarðs   

Anna María Þorkelsdóttir - Kennsluráðgjafi, námsgagnahöfnundur og sérfræðingur í leiðsagnarnámi og upplýsingatækni 

Kristrún Lind Birgisdóttir - Kennsluráðgjafi, námsgagnahöfundur og framkvæmdastjóri

Tinna Björk Pálsdóttir - Kennsluráðgjafi, námsgagnahöfnundur og sérfræðingur í leiðsagnarnámi og upplýsingatækni

--------------

**Þetta námskeið er einnig fáanlegt sem námskeið fyrir starfsdaga. Hentar vel sem hálfur eða heill dagur fer eftir stærð skóla. Vinsamlegast hafið samband við Önnu Maríu annamaria@ais.is eða Kristrúnu kristrun@ais.is 

Skoða allar upplýsingar