Sleppa vöruupplýsingum
1 af 1

Tækni. Fáanlegt sem starfsdagur.

Tækni. Fáanlegt sem starfsdagur.

Verð 175.300 kr.
Verð Útsöluverð 175.300 kr.
Útsala Uppselt
Virðisaukaskattur innifalinn ef við á Sendingarkostnaður reiknast út frá magni ef við á

Viltu efla þig í starfi, fá innblástur og hagnýtar hugmyndir sem hægt er að nota strax í kennslu? Viltu styrkja þekkingu þína á leiðsagnarnámi og samþættingu verkefna? Viltu slá tvær flugur í einu höggi með því að koma á námskeið þar sem þú undirbýrð kennsluna í leiðinni? Þá eru námskeiðin okkar fyrir þig.

Á námskeiðum Ásgarðs fá kennarar tækifæri til að kynna sér gæðarýnd þemaverkefni og verkefnapakka sem hafa lykilhæfni að leiðarljósi. Hvert skref er vandlega skipulagt og hvert viðfangsefni útskýrt ítarlega með skýrum námsmarkmiðum, viðmiðum um árangur og hugmyndum að bókum og kennslutækjum. Með námskeiðunum spara kennarar sér gríðarlega mikinn undirbúningstíma og samþætta starfsþróun og undirbúning kennslu. Kennarar læra jafnframt að gæðarýna eigin verkefni og aðlaga samþættingarverkefni að aldri nemenda og aðstæðum í hverjum skóla. 

Fyrirkomulag 

  • Námskeiðin fara fram á netinu og standa í tvo klukkutíma í senn - eða fara fram á einum heilum eða tveimur hálfum starfsdögum
    • Í fyrri hlutanum er eðli og innihald þemapakkanna kynnt, ásamt leiðum til að laga þá að hverjum skóla eða nemendahópi fyrir sig. 
    • Í seinni hlutanum er fyrirlestur um gæðarýni og leitast við að leysa vandamál sem upp hafa komið í kennslunni og miðla góðum hugmyndum áframi. 
  • Ítarlegur þemaverkefnipakki fyrir yngsta, mið og unglingastig fylgja með.  Breytanleg skjöl með ítarlegum kennsluáætlunum sem auðvelda kennurum að laga kennsluna að þörfum og aðstæðum hverju sinni. 

Dagsetningar

20. nóvember. Kl. 14.00 til 16.00

27. nóvember. Kl. 14.00 til 16.00

Á þessu hagnýta námskeiði læra kennarar að nota þemaverkefnið Tækni þar sem nemendur kynna sér tækni í umhverfi sínu í gegnum heildstætt námsferli og skoða jafnframt áhrif tækninnar á daglegt líf þeirra og annarra. Mikið er lagt upp úr samvinnu og samstarfi nemenda og vinnu með lykilhæfni. Markmiðið er að nýta samvinnuna til þess að styrkja félagsfærni, efla samkennd og auka virðingu fyrir samnemendum. 

Í námsferlinu kanna nemendur áhrif tækni á daglegt líf, finna lausnir, skipuleggja heimsreisu, velta fyrir sér þróun farartækja og líta til framtíðar. Verkefnin tengist heilsumarkmiðum og þemað endar á tæknisýningu. Þemanu er skipt í fjóra hluta. Í fyrsta hlutanum er unnið með hugtökin og þau fest í huga nemenda með skemmtilegum verkefnum. Þá tekur Tækni í umhverfi okkar við, þar sem fjallað er um tækni í daglegu lífi. Nemendur skoða tæknina í kringum sig, útbúa líkan af tæki sem þeim finnst mikilvægt og velta fyrir sér áhrifum tækninnar á sig og sitt nánasta umhverfi. Þriðji hlutinn nefnist Samgöngur og tækni. Þar skoða nemendur þróun samgangna út frá bókinni „Around the World in 80 days” og læra þannig um tækni og samgöngur á ensku. Í fjórða hlutanum Híbýli og tækni búa nemendur meðal annars til líkan af draumaherbergi og tengja saman stærðfræði og líkanagerð. Nemendur ígrunda framtíðina og velta fyrir sér framtíðartækni á heimilum. Í fimmta hlutanum Heilsu og tækni læra nemendur að búa til sína eigin hreyfibraut. Í lokin setja nemendur upp sýningu á afurðum þemans. 

Tækni er samþætt heildstætt þemaverkefni sem er hugsað sem verkefni fyrir heilan skólavetur (t.d. 2 tímar á viku í nýsköpunar- og frumkvöðlamennt) eða þéttar yfir styttri tíma. Hér er hægt að fara mjög fjölbreyttar leiðir við útfærslu verkefna, ekki síst með eldri nemendum, svo sem að vinna með Minecraft, 3D prentun og sýndarveruleika 

  • Verkefnin eru tuttugu og átta þar af er eitt sem inniheldur valverkefni og eitt STEAM verkefni.
  • Hæfniviðmiðin sem liggja að baki eru fimmtíu og átta.
  • Tími: Betri heimur er þemaverkefni sem getur náð yfir heilan vetur af vinnu sé það tekið sem ein heild með nemendum. Þemað sparar kennurum gríðarlega mikinn undirbúningstíma! 
  • Námsgreinar: Íslenska, list- og verkgreinar, lykilhæfni, náttúrugreinar, enska, samfélagsgreinar, stærðfræði og upplýsinga- og tæknimennt. STEM er samþætt inn í námsferlið og svo fylgja viðbótarverkefni með í lokin. 
  • Námsmarkmið og viðmið um árangur: Öll verkefni þemans eru tengd hæfniviðmiðum aðalnámskrár. Hverju verkefni fylgja námsmarkmið og ítarleg viðmið um árangur fyrir nemendur. 
  • Grunnþættir: Verkefnaferlið er unnið út frá grunnþættinum sköpun en verkefnin uppfylla einnig markmið allra grunnþátta aðalnámskrár.

Markmið námskeiðsins 

Markmið námskeiðsins byggja á reglugerð um hæfniramma með viðmiðum fyrir almenna og sérhæfða hæfni kennara og skólastjórnenda við leik-, grunn- og framhaldsskóla. 

  • Festa í sessi starfshætti leiðsagnarnáms og samþættingu námsgreina.
  • Efla færni kennara til að mæta betur námslegum þörfum ólíkra nemenda. 
  • Efla færni til að nýta árangursríkar aðferðir sem hafa jákvæð áhrif á hegðun, líðan og félagsfærni barna og stuðla að farsæld þeirra. 
  • Efla færni í að aðlaga inntak náms- og greinasviða í samræmi við aldur, þroska og þarfir nemenda. 
  • Efla færni til að nýta stafræna tækni og lykilhæfni í kennslu. 
  • Efla færni til að setja viðeigandi námsmarkmið með nemendum og styðja við framfarir þeirra í námi. 
  • Efla færni til að nýta gagnreyndar aðferðir við kennslu. 
  • Efla færni kennara til að nýta sveigjanlega náms- og kennsluhætti sem örva þroska og efla áhuga nemenda.
  • Efla færni kennara til að nýta árangursríkar aðferðir sem stuðla að lýðræðislegri þátttöku allra nemenda og auka áhrif þeirra á eigið nám. 

Styrkur

  • Kennarar geta sótt um styrk til Kí 
  • Kennarar geta skráð námskeiðið sem persónulega endurmenntun og fengið sérstakt viðurkenningarskjal með staðfestingu á hæfni 

Kennarar á námskeiðum Ásgarðs   

Anna María Þorkelsdóttir - Kennsluráðgjafi, námsgagnahöfnundur og sérfræðingur í leiðsagnarnámi og upplýsingatækni 

Kristrún Lind Birgisdóttir - Kennsluráðgjafi, námsgagnahöfundur og framkvæmdastjóri

Tinna Björk Pálsdóttir - Kennsluráðgjafi, námsgagnahöfnundur og sérfræðingur í leiðsagnarnámi og upplýsingatækni

--------------

**Þetta námskeið er einnig fáanlegt sem námskeið fyrir starfsdaga. Hentar vel sem hálfur eða heill dagur fer eftir stærð skóla. Vinsamlegast hafið samband við Önnu Maríu annamaria@ais.is eða Kristrúnu kristrun@ais.is 

Skoða allar upplýsingar