Sleppa vöruupplýsingum
1 af 1

Valdatafl. Fáanlegt sem starfsdagur.

Valdatafl. Fáanlegt sem starfsdagur.

Verð 175.300 kr.
Verð Útsöluverð 175.300 kr.
Útsala Uppselt
Virðisaukaskattur innifalinn ef við á Sendingarkostnaður reiknast út frá magni ef við á

Viltu efla þig í starfi, fá innblástur og hagnýtar hugmyndir sem hægt er að nota strax í kennslu? Viltu styrkja þekkingu þína á leiðsagnarnámi og samþættingu verkefna? Viltu slá tvær flugur í einu höggi með því að koma á námskeið þar sem þú undirbýrð kennsluna í leiðinni? Þá eru námskeiðin okkar fyrir þig.

Á námskeiðum Ásgarðs fá kennarar tækifæri til að kynna sér gæðarýnd þemaverkefni og verkefnapakka sem hafa lykilhæfni að leiðarljósi. Hvert skref er vandlega skipulagt og hvert viðfangsefni útskýrt ítarlega með skýrum námsmarkmiðum, viðmiðum um árangur og hugmyndum að bókum og kennslutækjum. Með námskeiðunum spara kennarar sér gríðarlega mikinn undirbúningstíma og samþætta starfsþróun og undirbúning kennslu. Kennarar læra jafnframt að gæðarýna eigin verkefni og aðlaga samþættingarverkefni að aldri nemenda og aðstæðum í hverjum skóla. 

Fyrirkomulag 

  • Námskeiðin fara fram á netinu í tvo klukkutíma í senn. 
    • Í fyrri hlutanum er eðli og innihald þemapakkanna kynnt, ásamt leiðum til að laga þá að hverjum skóla eða nemendahópi fyrir sig. 
    • Í seinni hlutanum er fyrirlestur um gæðarýni og leitast við að leysa vandamál sem upp hafa komið í kennslunni og miðla góðum hugmyndum áfram.
  • Ítarlegur þemaverkefnipakki fyrir yngsta, mið og unglingastig fylgja með.  Breytanleg skjöl með ítarlegum kennsluáætlunum sem auðvelda kennurum að laga kennsluna að þörfum og aðstæðum hverju sinni. 

Dagsetningar

12. janúar. Kl. 14.00 til 16.00 

9. febrúar. Kl. 14.00 til 16.00 

Á þessu hagnýta námskeiði læra kennarar að nota þemaverkefnið Valdatafl þar sem nemendur nota eigin hugmyndir til sköpunar, koma þeim á framfæri og upplifa birtingarmyndir jafnréttis og misréttis í gegnum verkefni sín. Í námsferlinu þjálfast nemendur í sjálfstæðum vinnubrögðum, vinna í hópi, ígrunda eigin vinnu og æfa sig að tjá skoðanir sínar á uppbyggilegan hátt. Í öllu ferlinu er mikilvægt að nemendur geti rökstutt mál sitt, bæði munnlega og skriflega.

Valdatafl er stórt samþættingarverkefni í fjórum hlutum. Hlutana má til dæmis vinna samfellt með öllum nemendum eða taka fyrsta hlutann sameiginlega og skipta hinum hlutunum á milli hópa eða bekkja. Í fyrsta hlutanum læra nemendur að þekkja hugtökin sem Valdatafl hverfist um, en þau eru: jafnrétti, launamisrétti, kvenréttindabarátta, staðalímyndir og mannréttindi með jafnréttissjónarmiðum. Nemendur læra jafnframt að skrifa heimildaritgerð út frá rannsóknarspurningu. Efni hinna hlutanna er í stórum dráttum: 

  1. Listaverk, Nemendur túlka hugtökin í listaverkum, efna til kappræðna um launamisrétti og stofna baráttusamtök
  2. Kvikmyndagerð. Nemendur skrifa handrit, vinna söguborð, undirbúa tökur og taka upp kvikmynd þar sem söguþráðurinn tengist a.m.k. einu af lykilhugtökum þemans. 
  3. Stjórnmálaflokkur. Nemendur stofna stjórnmálaflokk sem berst fyrir að minnsta kosti einu af lykilhugtökum þemans, auglýsa stjórnmálaflokkinn og taka þátt í þingstörfum svo eitthvað sé nefnt. 

Valdatafl er samþætt heildstætt þemaverkefni sem getur náð yfir heilt skólaár (t.d. 2 tímar á viku í nýsköpunar- og frumkvöðlamennt) eða verið unnið þéttar og á styttri tíma. Eins og í öllum öðrum verkefnum Ásgarðs hafa verkefnin verið tengd hæfniviðmiðunum og viðmið um árangur og námsmarkmið fylgja til að auðvelda leiðsagnarnámið. 

  • Verkefnin eru þrjátíu og átta þar af eru sjö valverkefni og eitt STEAM verkefni.
  • Hæfniviðmiðin sem liggja að baki eru hundrað og ellefu.
  • Tími: Valdatafl er þemaverkefni sem getur náð yfir heilan vetur af vinnu sé það unnið sem ein heild með nemendum. Þemað sparar kennurum gríðarlega mikinn undirbúningstíma! 
  • Námsgreinar: Íslenska, list- og verkgreinar, lykilhæfni, náttúrugreinar, enska, samfélagsgreinar, stærðfræði og upplýsinga- og tæknimennt. STEM er bæði samþætt inn í námsferlið og svo fylgja viðbótarverkefni með í lokin. Athugið að þennan verkefnapakka er auðvelt að laga að öllum bóklegum greinum. 
  • Námsmarkmið og viðmið um árangur: Öll verkefni þemans eru tengd hæfniviðmiðum aðalnámskrár. Hverju verkefni fylgja námsmarkmið og ítarleg viðmið um árangur fyrir nemendur. 
  • Grunnþættir: Verkefnaferlið er unnið út frá grunnþættinum jafnrétti en verkefnin uppfylla markmið allra grunnþátta aðalnámskrár.

Markmið námskeiðsins 

Markmið námskeiðsins byggja á reglugerð um hæfniramma með viðmiðum fyrir almenna og sérhæfða hæfni kennara og skólastjórnenda við leik-, grunn- og framhaldsskóla. 

  • Festa í sessi starfshætti leiðsagnarnáms og samþættingu námsgreina.
  • Efla færni kennara til að mæta betur námslegum þörfum ólíkra nemenda. 
  • Efla færni til að nýta árangursríkar aðferðir sem hafa jákvæð áhrif á hegðun, líðan og félagsfærni barna og stuðla að farsæld þeirra. 
  • Efla færni í að aðlaga inntak náms- og greinasviða í samræmi við aldur, þroska og þarfir nemenda. 
  • Efla færni til að nýta stafræna tækni og lykilhæfni í kennslu. 
  • Efla færni til að setja viðeigandi námsmarkmið með nemendum og styðja við framfarir þeirra í námi. 
  • Efla færni til að nýta gagnreyndar aðferðir við kennslu. 
  • Efla færni kennara til að nýta sveigjanlega náms- og kennsluhætti sem örva þroska og efla áhuga nemenda.
  • Efla færni kennara til að nýta árangursríkar aðferðir sem stuðla að lýðræðislegri þátttöku allra nemenda og auka áhrif þeirra á eigið nám. 

Styrkur

  • Kennarar geta sótt um styrk til Kí 
  • Kennarar geta skráð námskeiðið sem persónulega endurmenntun og fengið sérstakt viðurkenningarskjal með staðfestingu á hæfni 

Kennarar á námskeiðum Ásgarðs   

Anna María Þorkelsdóttir - Kennsluráðgjafi, námsgagnahöfnundur og sérfræðingur í leiðsagnarnámi og upplýsingatækni 

Kristrún Lind Birgisdóttir - Kennsluráðgjafi, námsgagnahöfundur og framkvæmdastjóri

Tinna Björk Pálsdóttir - Kennsluráðgjafi, námsgagnahöfnundur og sérfræðingur í leiðsagnarnámi og upplýsingatækni

--------------

**Þetta námskeið er einnig fáanlegt sem námskeið fyrir starfsdaga. Hentar vel sem hálfur eða heill dagur fer eftir stærð skóla. Vinsamlegast hafið samband við Önnu Maríu annamaria@ais.is eða Kristrúnu kristrun@ais.is 

Skoða allar upplýsingar